„Endurspeglar þetta hyldjúpa rugl í þessu máli að við séum með þrjár tölur“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. nóvember 2021 14:14 Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata. Vísir/Vilhelm Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, segir að þær tölur sem fram hafa komið við talningu, endurtalningu og yfirferð undirbúningskjörbréfanefndar á atkvæðum í Norðvesturkjördæmi gefi tilefni til að hægt sé að efast um allt sem sé á borðinu í kjördæminu.
Umræður um hvað skuli gera í kjörbréfamálinu svokallaða standa nú yfir á Alþingi en horfa má á beina útsendingu frá þingfundi hér. Þingfundur hófst á því að Birgir Ármannsson, formaður kjörbréfanefndar, fór yfir nefndarálit meirihluta kjörbréfanefndarinnar um að samþykkja ætti öll kjörbréf. Fór hann yfir rannsókn undirbúningskjörbréfanefndarinnar og rökstuðning meirihlutans fyrir tillögu hans. Andrés Ingi Jónsson og Björn Leví Gunnarsson, þingmenn Pírata, veittu Birgi andsvar og drógu þeir álit meirihlutans í efa. Ekkert hafi bent til þess að átt hafi verið við gögnin Andrés Ingi byrjaði á því að spyrja Birgi hvort hann gæti sagt honum hver niðurstaða kosninganna í Norðvesturkjördæmi hafi verið. Birgir skaust þá aftur upp í pontu og svaraði því til að að meirihluti nefndarinnar teldi að úrslit kosninganna hefði birst í þeim tölum sem voru birtar eftir seinni endurtalningu í kjördæminu, að frátöldum nokkrum atvæðum sem höfðu verið flokkið vitlaust. Birgir Ármannsson fór yfir álit meirihluta kjörbréfanefndar.Vísir/Vilhelm „Að öðru leyti hefur enginn dregið í efa að kjörseðlarnir og kosningagögnin sem við rannsökuðum og geymd eru í fangaklefa lögreglunnar í Borgarnesi séu rétt. Það sem er dregið í efa er það að varsla kjörgagna hafi verið fullnægjandi og nefndarmenn sammála um það að sú varsla var ekki fullnægjandi. En það er ekkert sem bendir til þess að átt hafi verið við gögnin á þessu tímabili og við byggjum okkar niðurstöðu á því,“ sagði Birgir. Hyldjúpt rugl að mati Andrésar Inga Andrés Ingi steig þá aftur upp í pontu og sagði mismun atkvæða á milli talninga gefa fullt tilefni til að hægt væri að efast um allt sem væri á borðinu í Norðvesturkjördæmi. „Það endurspeglar þetta hyldjúpa rugl í þessu máli að við séum með þrjár tölur. Háttvirtur þingmaður sagði að það væri seinni talningin sem að væri miðað við,“ sagði Andrés Ingi.´ Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á þingfundi í dag. Þau sátu bæði í kjörbréfanefndinni.Vísir/Vilhelm Fór hann þá yfir atkvæðatölur Viðreisnar sem fékk 1072 atkvæði eftir fyrstu talningu en missti níu atkvæði eftir seinni talningu auk þess sem að Andrés benti á að tvö atkvæði Viðreisnar hafi fundist við afstemmningu undirbúningskjörbréfanefndar. „Miðflokkurinn fór yfir úr 1283 yfir í 1278 og svo er líka hægt að segja að þeir hafi fengið 1279 atkvæði,“ sagði Andrés sem sagði fullt tilefni til að efast um talningarnar í Norðvesturkjördæmi. „Þó að þessar tölur einar og sér þegar þær eru settar í reiknilíkan Landskjörstjórnar breyti ekki heildarúthlutun á landsvísu þá gefa þær fullt tilefni til þess að við efumst allt sem er á borðinu í Norðvesturkjördæmi. Í fullkomnum heimi myndum við endurtelja þetta frá botni en við getum það ekki því það er búið að menga kjörgögnin. Hvernig í ósköpunum fær meirihlutinn út að það sé hægt að láta þessar tölur standa en ekki mæla með uppkosningu.“
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir Bein útsending: Niðurstaða fæst í kjörbréfamálið Þingsetningarathöfn Alþingis verður fram haldið klukkan eitt í dag. Á dagskrá þingfundarins er rannsókn kjörbréfa, umræður og atkvæðagreiðslur um þær tillögur sem fram hafa komið um lausn á kjörbréfamálinu. 25. nóvember 2021 12:45 Fyrst verða greidd atkvæði um tillögu Pírata um nýjar alþingiskosningar Þingmenn munu fyrst greiða atkvæði um tillögu Pírata í kjörbréfamálinu um að ekkert þeirra kjörbréfa sem Landskjörstjórn gaf út að loknum kosningum verði staðfest. Þrjár tillögur verða lagðar fyrir þingfund í dag þar sem meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréfin verði staðfest. 25. nóvember 2021 12:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Innlent Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Innlent Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Innlent Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Innlent Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg Innlent Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Innlent Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Innlent Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Innlent Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Innlent Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Erlent Fleiri fréttir Neytendastofa rannsakar frumskóg bílastæðagjalda Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu „Engin ástæða til að boða til kosninga“ Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna Stungumaður þarf að dúsa inni fram að dómi Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld Ræða vantrauststillögu Skólabrú með garði á þakinu „djörf og fersk“ tillaga Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Húsfélag ekki skaðabótaábyrgt vegna myglu í séreign Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Öryrkjar gagnrýna frestun á lagabreytingu og FÍB vill grisja bílastæðafrumskóginn Fleiri gifta sig hjá sýslumanni en í kirkju Sagði höfuðhögg eiga að koma í veg fyrir að lögreglan fengi hann í hendurnar Landlæknir rannsaki ummæli formanns Geðlæknafélagsins Fimmtungur ánægður með störf Einars borgarstjóra Brynjar pirrar sig á undirskriftum gegn Bjarna Umferðaróhapp við Vesturlandsveg Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg „Allir sem voru á þessum markaði spáðu því að þetta yrði svona“ „Við þurfum að fá einhver viðbrögð“ „Eðlilegt að þingið skeri stjórnina úr snörunni“ Sjá meira
Bein útsending: Niðurstaða fæst í kjörbréfamálið Þingsetningarathöfn Alþingis verður fram haldið klukkan eitt í dag. Á dagskrá þingfundarins er rannsókn kjörbréfa, umræður og atkvæðagreiðslur um þær tillögur sem fram hafa komið um lausn á kjörbréfamálinu. 25. nóvember 2021 12:45
Fyrst verða greidd atkvæði um tillögu Pírata um nýjar alþingiskosningar Þingmenn munu fyrst greiða atkvæði um tillögu Pírata í kjörbréfamálinu um að ekkert þeirra kjörbréfa sem Landskjörstjórn gaf út að loknum kosningum verði staðfest. Þrjár tillögur verða lagðar fyrir þingfund í dag þar sem meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréfin verði staðfest. 25. nóvember 2021 12:01