Innrás söngtifanna: Billjónir skordýra skríða upp á yfirborðið eftir sautján ár neðanjarðar Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2021 21:39 Söngtifa skríður upp úr jörðinni í Maryland í Bandaríkjunum. Söngtifurnar eru yfirleitt um þrír sentímetrar að stærð, þó þær líti ef til vill út fyrir að vera stærri á myndinni. AP/Carolyn Kaster Á næstu dögum munu billjónir söngtifa skríða upp úr jörðinni í Bandaríkjunum til að þroskast, makast, og koma fyrir eggjum. Þegar eggin klekjast skríða afkvæmin ofan í jörðina, eingöngu til þess að koma aftur upp á yfirborðið sautján eða þrettán árum síðar.
Tímalengdin fer eftir því hvaða tegund söngtifa er að ræða en þær eru sjö. Samkvæmt National Geographic er vitað um fimmtán árganga söngtifa í Bandaríkjunum og sá sem er að koma upp á yfirborðið þessa dagana kallast „Brood X“ og er hann á austurströnd Bandaríkjanna. Brood X eru meðal stærstu söngtifa sem vitað er um. Sérfræðingar sem AP fréttaveitan ræddi við hafa verið við rannsóknir í Maryland og áætla að þar megi finna um milljón söngtifur á hverri ekru (rúmlega fjögur þúsund fermetrar). Í einni lítilli skóflustungu, fundu þau sjö söngtifur. Hér má sjá útskýringarmyndband AP fréttaveitunnar. Dýrin skríða upp úr jörðinni þegar hún verður tæplega 18 gráðu heit og er það að gerast fyrr núna en áður vegna veðurfarsbreytinga. Þá eru tilteknir staðir þar sem jörðin er heitari en annarsstaðar og er ekki vitað með vissu hvenær söngtifurnar skríða upp úr jörðinni í massavís, þó margar þeirra hafi þegar fundist víða. The video speaks for itself! More cicadas have emerged on the University of Maryland College Park campus. Are you ready to experience the deafening hum of billions of cicadas in the next two weeks? pic.twitter.com/XWim1gu1ZK— CicadaCrewUMD (@CicadaCrewUMD) May 5, 2021 Þegar söngtifurnar koma upp úr jörðinni leggja þær mikið kapp á að komast frá jörðinni. Þær skríða upp allt sem er í boði og þá helst tré. Þar kalla karldýrin af miklum látum eftir maka. Heppnist það þarf að verpa eggjum og oftar en ekki deyja dýrin svo í kjölfarið. Þetta ferli gerist hvergi annars staðar en í Bandaríkjunum. Fyrsta tilfellið sem skráð er í sögubækurnar var í Massachusetts árið 1634. Þá héldu strangtrúaðir innflytjendur að engisprettuplága eins og þær sem nefndar eru í gamla testamentinu væri að skella á. Tonight may be the night. Tons emerging in the yard. pic.twitter.com/uUcBU6pXOM— Tim Pfeiffer (@Tim_Pfeiffer) May 5, 2021
Bandaríkin Dýr Skordýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Sjá meira