Krefjast svara Landspítala í kjölfar ummæla yfirlæknis Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. mars 2021 17:44 Landspítalinn í Fossvogi. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir því að Landspítalinn staðfesti vilja sinn til þess að annast greiningu leghálssýna vegna krabbameinsskimunar. Fyrirhugað er að skimunin verði flutt til Danmerkur.
Í fréttum Ríkisútvarpsins þann 25. febrúar var haft eftir Jóni Gunnlaugi Jónassyni að meinafræðideild Landspítalans gæti tekið að sér rannsókn á leghálssýnum en ekki hafi verið óskað eftir því. Sagði hann „synd að sýni úr íslensku fólki séu send úr landi ef það er óþarfi.“ Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu er óskað eftir því að spítalinn geri grein fyrir því til hvaða aðgerða þyrfti að grípa til að annast skimunina þannig að hún uppfylli viðmið um gæði, öryggi og skilvirkni. Þá er tekið fram að Heilsugæslan hefði beint erindi til Landspítala í júlí á síðasta ári, varðandi greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimunum. Landspítali hafi svarað erindinu í águst og í svarinu hafi komið fram að rannsóknir og greiningar frumusýna í tengslum við skimunina væru frábrugðnar starfi meinafræðideildar spítalans, þarfnaðist sérhæfðs starfsfólks og mjög sérhæfðs tækjabúnaðar, auk viðeigandi húsnæðis. „Mjög lítið af þessu er til staðar á meinafræðideildinni og verður að segjast […] að við teljum ekki ástæðu til að óska eftir að sinna þessari rannsóknarstarfsemi,“ sagði í svari Landspítalans við erindi Heilsugæslunnar á síðasta ári. „Tilvitnað bréf og umræður í kjölfar þess leiddu til þess að heilsugæslan leitaði annarra lausna um greiningu á sýnum og gerði samning til þriggja ára við rannsóknarstofu sjúkrahússins í Hvidovre í Danmörku. Sá samningur er uppsegjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins, sem óskar eftir svörum Landspítala við erindinu fyrir 15. mars næstkomandi. Uppfært: Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar var því slegið föstu að ummæli yfirlæknis sem vísað er til í tilkynningu stjórnarráðsins væru frá Karli G. Kristinssyni, yfirlækni sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans. Þetta hefur verið leiðrétt.
Heilbrigðismál Heilsugæsla Skimun fyrir krabbameini Landspítalinn Tengdar fréttir Um 350 leghálssýni reyndust „óeðlileg“ Af þeim konum sem fóru í leghálssýnatöku í lok árs 2020 og höfðu ekki fengið niðurstöðu þegar krabbameinsskimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar og Landspítala um áramótin þurfa um 350 að mæta aftur í sýnatöku. 27. febrúar 2021 12:15 Yfirlæknar á Landspítalanum vilja óháða úttekt á flutningi krabbameinsskimunar Samtök yfirlækna á Landspítala segja að yfirvöld hafi hunsað álit fjölmargra fagaðila þegar ákvörðun var tekin um að allar rannsóknir á leghálsskimunarsýnum verði fluttar frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. 26. febrúar 2021 18:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Innlent Fleiri fréttir Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Sjá meira
Um 350 leghálssýni reyndust „óeðlileg“ Af þeim konum sem fóru í leghálssýnatöku í lok árs 2020 og höfðu ekki fengið niðurstöðu þegar krabbameinsskimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar og Landspítala um áramótin þurfa um 350 að mæta aftur í sýnatöku. 27. febrúar 2021 12:15
Yfirlæknar á Landspítalanum vilja óháða úttekt á flutningi krabbameinsskimunar Samtök yfirlækna á Landspítala segja að yfirvöld hafi hunsað álit fjölmargra fagaðila þegar ákvörðun var tekin um að allar rannsóknir á leghálsskimunarsýnum verði fluttar frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. 26. febrúar 2021 18:22