Þurfum að ná sömu markmiðum með öðrum hætti ef niðurstaðan verður staðfest Sunna Sæmundsdóttir skrifar 6. apríl 2021 18:36 Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms um sóttkvíarhótel vera vonbrigði en næstu skref verða ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. Þingmaður Pírata í velferðarnefnd segir málið risa stórt klúður og ætlar ekki að samþykkja lagabreytingar sem gætu skotið stoðum undir fyrirkomulagið.
Í úrskurði héraðsdóms segir að skyldusóttkvíin á Fosshótel, sem kveðið er á um í reglugerð, eigi sér ekki stoð í sóttvarnarlögum. Í lögum sé sóttvarnarhús skilgreint sem staður fyrir fólk sem eigi ekki í önnur hús að venda. Bent er á að kærandi eigi lögheimili á Íslandi og geti verið þar. Velferðarnefnd fundaði í dag um stöðuna sem upp er komin. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata í nefndinni, telur að meðalhófs hafi ekki verið gætt. „Þetta er bara eitt risastórt klúður þessi reglugerð,“ segir hún. „Það skiptir gríðarlegu máli að við séum að hindra útbreiðslu veirunnar án þess að brjóta á réttindum fólks að óþörfu. Eftir þennan fund get ég ekki séð að við höfum fullrannsakað alla kosti, eða það er að segja vægari úrræði. Og til dæmis það að efla eftirlit eða skapa jákvæð hvata fyrir fólk að fara í sóttvarnarhús,; hvort það væri með dagpeningum eða öðru,“ segir Halldóra. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.vísir/Vilhelm Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir niðurstöðuna vonbrigði en að næstu skref verði ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. „Við þurfum að skoða þetta allt í samhengi. Annars vegar lagagrundvöllurinn og regluverkið og hins vegar framkvæmdina varðandi sóttkví og landamærin. Markmiðið er að ná utan um smit og að þau breiðist ekki út í samfélaginu. Og við þurfum að huga að því, ef niðurstaðan er þannig, með hvaða hætti við náum þessum sömu markmiðum.“ Sóttvarnarlæknir skoraði í dag á stjórnvöld að treysta lagagrundvöllinn til þess að hægt verði að skylda fólk áfram í sóttkví. Ekki er einhugur um það á þingi. „Ég samþykki það ekki. Eða ég myndi ekki taka þátt í því. Ég myndi frekar vilja sjá okkur gæta meðalhófs og skoða aðrar aðgerðir fyrst, hvort það sé með öðrum hætti hægt að vinna bug á því að nokkrir aðilar séu að brjóta sóttkví,“ segir Halldóra Mogensen. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar.vísir/Vilhelm Aðspurð um meðalhóf í þessum aðgerðum segist Svandís segist þó hafa gengið skemur en sóttvarnarlæknir lagði til. „Tillaga sóttvarnalæknis gengur til að byrja með út á að skoða hvort það sé hægt að að beita þessu úrræði á alla sem koma til landsins. Og þetta er okkar nálgun að fara þessa leið; að skylda þau sem hafa verið á hááhættusvæðum til þess að vera í sóttvarnarhúsi.“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar og formaður velferðarnefndar, sagði í dag að aðgerðir ríkisstjórnarinnar væru glannalegar. „Þegar það er hiti á málum er freistandi fyrir stjórnmálin að hoppa undir ljósið og hafa stór orð um stöðuna. En þegar viðfangsefnið er heimsfaraldur þurfum við að sýna ábyrgð og taka skrefin af yfirvegun og reyna að glíma við það innra með okkur sem stjórnmálafólk að fara ekki í gífuryrðin,“ segir Svandís aðspurð um gagnrýnina.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Sjá meira