Birgir Þórarinsson leiðir framboðslista Miðflokksins í Suðurkjördæmi til alþingiskosninga 2021. Á eftir honum kemur Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni, og í þriðja sæti er Heiðbrá Ólafsdóttir, lögfræðingur og kúabóndi á Stíflu í Rangárþingi eystra. Karl Gauti Hjaltason er ekki á listanum eins og mbl.is greindi frá fyrir helgi.
Sem stendur er Miðflokkurinn með tvo þingmenn í Suðurkjördæmi en það eru þeir Birgir Þórarinsson og Karl Gauti. Karl skipti yfir í Miðflokkinn eftir Klaustursmálið seint á árinu 2018. Karl Gauti var áður þingmaður Flokks fólksins og var kjörinn á þing sem þingmaður þess flokks.
Listinn var samþykktur á félagsfundi í kvöld með 93% greiddra atkvæða, því reyndist ótti uppstillinganefndar, um að listinn yrði felldur líkt og gerðist í syðra Reykjavíkurkjördæmi, á sandi reistur.
Listinn í heild sinni: