„Þetta virðist vera stjórnlaust ástand“ Tryggvi Páll Tryggvason og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 21. júní 2022 20:30 Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn. Vísir/Vilhelm Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn segir að ástandið á húsnæðismarkaði sé stjórnlaust. Hann vonast til þess að fyrstu aðgerðir til að flýta úthlutun lóða í borginni komist á koppinn í sumar.
Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 24 prósent. Sérbýli hefur hækkað mest eða um ríflega fjórðung á sama tíma og fjölbýli hefur hækkað um tæplega 24 prósent. Reiknað er með að Seðlabanki Íslands muni reyna að slá á þessa hækkum með hækkun stýrivaxta á morgun. Hagfræðingur sagði þó í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld að enn væri nóg eldsneyti á bálinu til að viðhalda hækkunum á húsnæðisverði næstu vikur og mánuði. Framsóknarflokkurinn lagði mikla áherslu á húsnæðismálin í aðdraganda borgarstjórnarskosninganna. Nú þegar flokkurinn er kominn í meirihluta er því spurningin hvernig flokkurinn hyggst beita sér í húsnæðismálum. Einar sat fyrir svörum í beinni útsendingu í kvöldfréttum okkar í kvöld. „Þetta virðist vera stjórnlaust ástand á húsnæðismarkaðinum og eina leiðin til að koma böndum á þessa óstjórn er að úthluta lóðum, færa lóðir upp úr teikningunum og yfir í byggingarhæfar lóðir. Flýta því öllu eins og við getum,“ sagði Einar. Þar minntist hann á í fyrstu aðgerðum væri gert ráð fyrir að úthluta tæplega fjögur hundruð íbúðum í Úlfarsárdal, auk íbúða á Kjalarnesi, Gufunesi og fleiri stöðum. Mikilvægt væri að flýta öllum þessum áformum. „Þetta er bara stóra verkefnið, að auka magnið, hraða framkvæmdum og reyna að ná árangri í þessu.“ Þetta tekur tíma, hvenær megum við sjá einhvern árangur? „Nú eru tæpar tvær vikur síðan ég fékk stimpilkort inn í ráðhúsinu. Það tekur smá tíma að kortleggja en fyrstu aðgerðir verða núna vonandi strax í sumar.“
Húsnæðismál Borgarstjórn Skipulag Framsóknarflokkurinn Reykjavík Tengdar fréttir Enn heilmikið eldsneyti á bálinu til að viðhalda hækkunum á húsnæðisverði Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 24 prósent. Sérbýli hefur hækkað mest eða um ríflega fjórðung á sama tíma og fjölbýli hefur hækkað um tæplega 24 prósent 21. júní 2022 19:16 Sársaukafullar vaxtahækkanir framundan Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% í apríl sem þýðir að húsnæðisverð hefur hækkað um 8,5% á þremur mánuðum. Árshækkunartakturinn stendur nánast í stað og er nú 22,3%. 3. júní 2022 09:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Enn heilmikið eldsneyti á bálinu til að viðhalda hækkunum á húsnæðisverði Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 24 prósent. Sérbýli hefur hækkað mest eða um ríflega fjórðung á sama tíma og fjölbýli hefur hækkað um tæplega 24 prósent 21. júní 2022 19:16
Sársaukafullar vaxtahækkanir framundan Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% í apríl sem þýðir að húsnæðisverð hefur hækkað um 8,5% á þremur mánuðum. Árshækkunartakturinn stendur nánast í stað og er nú 22,3%. 3. júní 2022 09:00