Dauðsföll vegna ofskammta í nýjum hæðum vestanhafs Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2021 14:01 Fentanýl hefur leitt til fjölmargra dauðsfalla í Bandaríkjunum á undanförnum árum. Vísir/Getty Dauðsföll vegna ofskammta af verkjalyfjum hafa náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum. Fíkniefnalögregla Bandaríkjanna (DEA) hefur varað við því að verkjalyf sem ganga kaupum og sölum á svarta markaðinum vestanhafs innihaldi fentanýl eða metamfetamín og það hafi leitt til fjölmargra dauðsfalla.
Anne Milgram, yfirmaður DEA, segir í viðtali við Washington Post að Bandaríkin séu í krísu að hennar mati og þessum lyfjum sé að miklu leyti um að kenna. Því hafi sú ákvörðun verið tekin að gefa út sérstaka viðvörun við þeim í dag. Fíkniefnalögreglan hefur ekki gefið út sambærilega viðvörun frá 2015 þegar varað var við því að heróín sem innihéldi fentanýl væri í dreifingu í Bandaríkjunum. Fentanýl er ópíóði sem er áttatíu til hundrað sinnum öflugra en ópíum. Það var þróað til að draga úr verkjum krabbameinssjúklinga. Á vef DEA segir að fentanýl sé iðulega notað til að auka styrk heróíns eða selt fíklum sem heróín. Það að fíklar telji sig hafa keypt heróín en hafi í raun keypt fentanýl hafi leitt til dauða fjölmargra. Rúmlega 93 þúsund dóu vegna of stórra skammta lyfja í Bandaríkjunum í fyrra. Það var nærri því þrjátíu prósenta aukning frá 2019. Tvær af hverjum fimm bannvænar Í áðurnefndri viðvörun DEA, sem ber titilinn „Ein pilla getur drepið“, segir að frá 2019 hafi magn pilla með fentanýli sem stofnunin hefur lagt hald á aukist um 430 prósent. Rannsóknir hafi sýnt að tvær af hverjum fimm pillum innihaldi mögulega banvænt magn fentanýls. Washington Post segir að á þessu ári hafi stofnunin lagt hald á 9,6 milljónir pilla sem framleiddar hafi verið af glæpasamtökum og innihaldi fentanýl. Það séu fleiri pillur en lagt var hald á árið 2020 og árið 2019 samanlagt. Frá árinu 1999 hafa Bandaríkin gengið í gegnum versnandi lyfjafaraldur, sem í fyrstu lýsti sér í mikilli notkun ópíóða eins og Oxycodone, Vicodin og Percocet. Undanfarin ár hefur dauðsföllum vegna þessa faraldurs farið verulega fjölgandi og þá að miklu leyti vegna aukinnar notkunar fentanýls. Milgram segir að glæpasamtök í Kína og Mexíkó flytji mikið magn lyfja til Bandaríkjanna sem seld séu á netinu sem Oxycodone, Percocet eða Adderall. Pillurnar innihaldi þó í raun fentanýl eða metamfetamín.
Bandaríkin Fíkn Tengdar fréttir Wire-stjarnan lést úr ofskammti af eiturlyfjum Réttarmeinafræðingur í New York hefur úrskurðað að Michael K. Williams, leikarinn sem var helst þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni The Wire, hafi látist af því að hafa tekið óvart of stóran skammt af blöndu eiturlyfja og lyfja. 25. september 2021 08:47 Metfjöldi látinna af völdum ofneyslu fíkniefna í Bandaríkjunum Alls létust 92 þúsund manns í Bandaríkjunum vegna of stórs skammts fíkniefna á Covid-árinu 2020. Það er mesti fjöldi sem látist hefur í Bandaríkjunum á einu ári af völdum fíkniefna. 15. júlí 2021 18:08 Mikil notkun á Fentanýl og aukinn fjöldi ofskammtana Talsvert hefur borið á ofskömmtunum í gistiskýlum borgarinnar, sem rakið er til aukinnar notkunar á Fentanýlplástrum. Kallað er eftir því að neyðarlyfið Naloxon verði aðgengilegt fólki svo hægt sé að koma í veg fyrir dauðsföll. 26. febrúar 2021 20:00 Tvö andlát ungmenna vegna ofneyslu lyfja til rannsóknar Tvö ungmenni hafa látist af völdum ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja á síðustu þremur mánuðum. Verkefnastýra Frú Ragnheiðar vill auka aðgengi fólks í áhættuhegðun að mótefni sem getur komið í veg fyrir ofneyslu eða jafnvel andláti. 28. febrúar 2020 22:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Wire-stjarnan lést úr ofskammti af eiturlyfjum Réttarmeinafræðingur í New York hefur úrskurðað að Michael K. Williams, leikarinn sem var helst þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni The Wire, hafi látist af því að hafa tekið óvart of stóran skammt af blöndu eiturlyfja og lyfja. 25. september 2021 08:47
Metfjöldi látinna af völdum ofneyslu fíkniefna í Bandaríkjunum Alls létust 92 þúsund manns í Bandaríkjunum vegna of stórs skammts fíkniefna á Covid-árinu 2020. Það er mesti fjöldi sem látist hefur í Bandaríkjunum á einu ári af völdum fíkniefna. 15. júlí 2021 18:08
Mikil notkun á Fentanýl og aukinn fjöldi ofskammtana Talsvert hefur borið á ofskömmtunum í gistiskýlum borgarinnar, sem rakið er til aukinnar notkunar á Fentanýlplástrum. Kallað er eftir því að neyðarlyfið Naloxon verði aðgengilegt fólki svo hægt sé að koma í veg fyrir dauðsföll. 26. febrúar 2021 20:00
Tvö andlát ungmenna vegna ofneyslu lyfja til rannsóknar Tvö ungmenni hafa látist af völdum ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja á síðustu þremur mánuðum. Verkefnastýra Frú Ragnheiðar vill auka aðgengi fólks í áhættuhegðun að mótefni sem getur komið í veg fyrir ofneyslu eða jafnvel andláti. 28. febrúar 2020 22:00