Ánamaðkaverksmiðja í Árborg Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 5. desember 2020 12:19 Sigurjón fær næsta haust um eina milljóna af ánamöðkum frá Austurríki, sem munu fjölga sér hratt og verða ánamaðkarnir orðnir sex til átta milljónir á tiltölulega stuttum tíma. Aðsend Ein milljón ánamaðka frá Austurríki verða fluttir inn til landsins á nýju ári en ánamaðkarnir munu fara til starfa í Árborg við framleiðslu á áburði úr lífrænum úrgangi á bænum Borg.
Það er Sigurjón Vidalín Guðmundsson, sem býr á Selfossi sem er að fara að flytja ánamaðkana inn til landsins með leyfi Umhverfisstofnunar. Ánamaðkarnir fara á jörðina Borg, sem er á milli Eyrarbakka og Stokkseyri og vinna sína vinnu þar en Sigurjón hefur fengið leigða 14 hektara spildu af Sveitarfélaginu Árborg á Borg. „Þessi aðferð að framleiða áburð með hjálp ánamaðka, sem nýtist svo í alla lífræna ræktun fannst mér upplögð og gott innlegg í þetta hringrásarhagkerfi, sem við erum að reyna að færast nær og það er líka mikil vöntun á svona áburði fyrir lífræna ræktendur,“ segir Sigurjón. Sigurjón Vidalín Guðmundsson, ánamaðkasérfræðingur, sem ætlar sér að koma upp ánamaðkaverksmiðju á bænum Borg í Sveitarfélaginu Árborg.Aðsend Sigurjón er í samstarfi við aðila í Austurríki, sem útvega honum ánamaðkana og þá þekkingu og þjálfun, sem til þarf til að setja upp ánamaðka fyrirtæki eins og Sigurjón er að gera. „Ánamaðkarnir sjá um að éta lífræna úrganginn, sem þeim er gefin og skila honum frá sér sem áburði. Ég fæ að flytja inn eina milljón maðka og þeir þurfa síðan að fjölga sér upp í sex til átta milljónir og það mun gerast á fyrsta árinu þannig að eftir fyrsta árið er vinnslan komin á hámarksafköst,“ segir Sigurjón. Sigurjón vonast til að ánamaðkarnir komi til landsins næsta haust. Þeir verða í 20 – 25 metra löngum kössum, sem eru um 1 meter að dýpt í einangruðum bogahúsum með rafmagni, vatni og hita í verksmiðjunni hans á Borg. Í kössunum halda ormarnir sig nærri yfirborðinu og matast á lífræna úrganginum. Ánamaðkarnir verða í einangruðum kössum en hver þeirra verður um 20 til 25 metrar að lengd.Aðsend
Árborg Landbúnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira