Rauðar og appelsínugular viðvaranir

Aftakaveður veður á austurhelmingi landsins í dag.
Aftakaveður veður á austurhelmingi landsins í dag. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi og gular viðvaranir á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi eystra, miðhálendinu og Austurlandi að Glettingi.

Klukkan níu tekur gildi appelsínugul viðvörun fyrir Norðurland eystra, Austfirði og miðhálendið.

Klukkan tólf á hádegi tekur svo gildi rauð viðvörun fyrir Austfirði og verður hún í gildi þangað til klukkan níu í kvöld. Þá tekur við appelsínugul viðvörun fram eftir nóttu. Appelsínugul viðvörun verður einnig í gildi á Suðausturlandi og Austurlandi að Glettingi fram yfir miðnætti.

Ekki rauð viðvörun nema veður sé hættulegt 

Sérlega öflug lægð er nú stödd fyrir norðan land og sendir hún norðvestan vindstreng yfir austurhluta landsins í dag sem veldur aftakaveðri á þeim slóðum, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Í dag má búast við norðvestan stormi eða roki á austurhelmingi landsins og jafnvel ofsaveðri á Austfjörðum, sem skýrir rauða veðurviðvörun. Slík viðvörun er ekki gefin út nema um hættulegt veður sé að ræða og því mikilvægt að sleppa ferðalögum og huga að eigin öryggi.

Vestanvert landið sleppur við óveður í dag, þar lægir vind með morgninum og verður skaplegt veður eftir hádegi.

Kalt heimskautaloft kemur yfir landið

Eftir hlýindi í gær dregur áðurnefnd lægð kalt heimskautaloft yfir landið í dag og það kólnar snögglega. Á Norður- og Austurlandi má búast við rigningu nærri sjávarmáli, en slyddu eða snjókomu á heiðum og til fjalla. Sunnan- og vestanlands verður hins vegar þurrt og bjart veður.

Á morgun er útlit fyrir fremur hægan vind á vesturhelmingi landsins. Austanlands er spáð norðvestan hvassviðri eða stormi á morgun sem eru þá leifarnar af illviðri dagsins í dag. Víða þurrt og bjart veður, en rigning eða slydda um tíma á Austurlandi. Hiti 2 til 9 stig yfir daginn, mildast við suðurströndina.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:
Norðan 5-10 m/s á vesturhelmingi landsins, en norðvestan 15-23 austanlands. Víða þurrt og bjart veður, en rigning eða slydda um tíma á Austurlandi. Hiti 2 til 9 stig yfir daginn, mildast á Suðurlandi.

Á þriðjudag:
Breytileg átt 3-8, en norðan strekkingur við austurströndina fyrir hádegi. Skýjað með köflum á landinu og þurrt að mestu. Hiti 3 til 10 stig, mildast sunnanlands.

Á miðvikudag:
Sunnan 3-8 og lítilsháttar væta, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 10 stig.

Á fimmtudag:
Suðaustan 8-13 og rigning með köflum, en áfram þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 6 til 12 stig.

Á föstudag:
Ákveðin austanátt rigning öðru hverju, en talsverð rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Austan- og norðaustanátt, rigning með köflum og milt í veðri.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert