Fórnarlamb flugumannsins sem kom til Íslands fær háar bætur Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. janúar 2022 22:43 Lögreglan í London fær á baukinn. EPA-EFE/NEIL HALL Kona sem breski flugumaðurinn Mark Kennedy braut gróflega fær háar bætur eftir að dómstóll í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu að lögreglan í London hafi brotið á mannréttindum hennar.
Dómarar við bresku dómsmálastofnunina komust að niðurstöðunni í október en upphæð skaðabóta var ákvörðuð í dag. Flugumaðurinn Kennedy, sem var útsendari lögreglu, átti í ástarsambandi við hana í upphafi aldarinnar í þeim tilgangi að afla upplýsingum til lögreglu um hana og þá hópa sem hún tengdist. Konan sem um ræðir, Kate Wilson, var með Kennedy í hátt í tvö ár og lauk sambandi þeirra árið 2005. Hún vissi ekki að Kennedy, sem gekk þá undir nafninu Mark Stone, væri í raun útsendari lögreglu sem var í sjö ára verkefni sem sneri að því að njósna um umhverfissinna og aðra pólitíska hópa víða um heim. Wilson mun fá 230 þúsund pund í bætur, um fjörutíu milljónir íslenskra króna. Dómstólinn segir að málið hafi varpað ljósi á alvarlegar og ámælisverðar brotalamir. Kom til Íslands og mótmælti við Kárahnjúkavirkjun Mál Kennedy vakti töluverða athygli árið 2010 þegar aðgerðarsinnum tókst að koma upp um hann og verkefnið. Málið teygði meðal annars anga sína til Íslands þar sem Kennedy kom hingað sumarið 2005 og var meðal mótmælenda í hópnum Saving Iceland, sem mótmæltu meðal annars við Kárahnjúkavirkjun. Kennedy er sagður hafa njósnað um mótmælendurna en í skýrslu sem ríkislögreglustjóri skilaði þáverandi ráðherra dómsmála árið 2011 kemur fram að ekki hafi komið fram upplýsingar í athugun lögreglu sem gera kleift að skera úr um hvort þessi flugumaður bresku lögreglunnar hafi verið hér á landi í samvinnu eða með vitund lögreglunnar árið 2005, eins og það var orðað í skýrslunni.
Bretland Erlend sakamál Tengdar fréttir Lögregla braut gegn konu sem var blekkt af flugumanninum sem kom til Íslands Dómarar við bresku dómsmálastofnunina IPT hafa komist að þeirri niðurstöðu að lögreglan í Lundúnum hafi brotið gróflega á mannréttindum konu sem flugumaðurinn Mark Kennedy átti í ástarsambandi við með þeim tilgangi að afla upplýsingum til lögreglu um hana og þá hópa sem hún tengdist. 1. október 2021 18:05 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira
Lögregla braut gegn konu sem var blekkt af flugumanninum sem kom til Íslands Dómarar við bresku dómsmálastofnunina IPT hafa komist að þeirri niðurstöðu að lögreglan í Lundúnum hafi brotið gróflega á mannréttindum konu sem flugumaðurinn Mark Kennedy átti í ástarsambandi við með þeim tilgangi að afla upplýsingum til lögreglu um hana og þá hópa sem hún tengdist. 1. október 2021 18:05