Landsbankinn hagnast um 14,1 milljarð króna Eiður Þór Árnason skrifar 22. júlí 2021 13:23 Bankinn birti jákvæðu niðurstöðurnar í dag. Vísir/Vilhelm Landsbankinn hagnaðist um 6,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2021 og var afkoma bankans jákvæð um 14,1 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar var 3,3 milljarða króna tap á sama tímabili árið 2020.
Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 10,8% á ársgrundvelli, en hún var neikvæð um 2,7% á sama tímabili árið 2020. Þetta kemur fram í fjárhagsuppgjöri Landsbankans fyrir fyrri helming 2021. Heildareignir bankans jukust um 113 milljarða króna á tímabilinu og námu 1.677 milljörðum króna í lok fyrri helmings ársins 2021. Kostnaðarhlutfall var 43,7% undir lok tímabilsins. Útlán jukust um 54,6 milljarða króna en útlánaaukninguna á fyrri helming ársins má að sögn bankans rekja til aukningar á lánum einstaklinga. Í lok fyrri helmings ársins 2021 voru innlán frá viðskiptavinum 843 milljarðar króna, samanborið við 793 milljarða króna í árslok 2020 og höfðu því aukist um 50 milljarða króna. Juku markaðshlutdeild sína Eigið fé Landsbankans var 267,9 milljarðar króna þann 30. júní síðastliðinn og eiginfjárhlutfallið var 25,1%. Markaðshlutdeild á einstaklingsmarkaði er tæplega 39% og hefur aldrei verið hærri, að sögn bankans. Íbúðalán hafa aukist um 14% frá áramótum og hefur hlutdeild hans á íbúðalánamarkaði aldrei verið meiri, að sögn bankans. Á fyrri árshelmingi námu hreinar vaxtatekjur 19 milljörðum króna sem er sama fjárhæð og árið áður. Hreinar þjónustutekjur Landsbankans námu 4,4 milljörðum króna samanborið við 3,6 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Aðrar rekstrartekjur voru 6,9 milljarðar króna en voru neikvæðar um 13,3 milljarða króna á sama tímabili árið 2020. Betri staða efnahagslífsins hafði áhrif á fjárhaginn Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að um mitt ár 2020 hafi verið settar verulegar fjárhæðir í varúðarsjóð vegna mögulegra útlánatapa en vegna betri stöðu í efnahagslífinu og fárra vanefnda séu virðisbreytingar útlána nú jákvæðar og varúðarsjóður lækki á árinu. „Bankinn er eftir sem áður í góðri stöðu til að takast á við áframhaldandi óvissu og bregðast við áhrifum Covid-19-faraldursins,“ segir Lilja Björk í tilkynningu. „Uppgjör bankans fyrstu sex mánuði ársins er afar gott; arðsemi eiginfjár er góð, kostnaður lækkar og traust afkoma var af öllum starfsþáttum. Merkjanleg aukning er í eignastýringu og markaðshlutdeild bankans hefur aldrei verið hærri.“ Lilja bætir við að undanfarið ár hafi áhugi almennings á að ávaxta sparifé sitt með kaupum í verðbréfasjóðum og hlutabréfum aukist til muna.
Íslenskir bankar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Neytendur Svona getur þú sagt Nei í vinnunni án þess að fá samviskubit Atvinnulíf Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Atvinnulíf Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Samstarf Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Samstarf Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Viðskipti innlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Sjá meira