Innlent

Reikna með hlaupi úr Grímsvötnum á allra næstu dögum

Kolbeinn Tumi Daðason og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Jarðvísindamenn eiga von á jökulhlaupi á allra næstu dögum. Eldgos er möguleg afleiðing slíks hlaups.
Jarðvísindamenn eiga von á jökulhlaupi á allra næstu dögum. Eldgos er möguleg afleiðing slíks hlaups. Vísir/Vilhelm

Von er á því að hlaup úr Grímsvötnum í Vatnajökli hefjist á allra næstu dögum. Dæmin hafa sýnt að slíkum jökulhlaupum geta fylgt eldgos. Fundi vísindaráðs Almannavarna lauk á fimmta tímanum í dag.

Björn Oddsson er jarðeðlisfræðingur hjá Almannavörnum og sat fundinn ásamt fleiri vísindamönnum. Niðurstaðan er sú að hlaups sé að vænta.

„Í Grímsvötnum safnast fyrir bræðsluvatn undir íshellu sem liggur þarna yfir. Það er GPS-mælitæki sem er ofan á íshellunni sem sýnir stöðuna á vatninu. Þegar vatn safnast saman þá rýs hellan. Síðustu mánuði og eitt til tvö ár hefur íshellan verið með mjög háa stöðu. Mikið vatn er í Grímsvötnum og það er metið að sé um einn rúmkílómetri sem er þar fyrir,“ segir Björn.

Nú hafi farið að berast merki frá GPS-stöðinni um að íshellan sé farin að síga sem bendi til þess að vatn sé að renna undan henni og í átt að Skeiðárjökli.

„Það má búast við því að hefjist hlaup úr Grímsvötnum á næstu dögum,“ segir Björn.

„Við höfum séð þetta áður, eins og síðasta sumar, að það koma merki frá tækjum en þá var það þess eðlis að það var farið að bráðna undan GPS-tækinu. En nú erum við með tvö tæki þarna upp frá og þau sýna sama ferlið. Svo það er staðfest að íshellan er sannarlega að síga.“

Björn segir að hlaupið eitt og sér muni sennilega ekki hafa sérstaklega mikil áhrif á mannvirki.

„Vatnið rennur í Gígjuhvísl og síðan undir brúna á þjóðveginum þar. Það þarf að fylgjast vel með þróuninni og hvernig vatnsstaðan er þar þegar hlaupið kemur undan. Dæmin hafa sýnt að eldgos geta fylgt slíkum jökulhlaupum. Það er þá fylgst með jarðskjálftamælum og öðru í Grímsvötnum. Ef eitthvað bendir til þess að þessum atburðum myndi fylgja eldgos þá skiptum við um gír og tökum á þeim atburði ef af honum verður.“

Aðspurður um líkur á eldgosi segir Björn:

„Það er hvorki líklegt né ólíklegt en möguleiki og þess vegna verðum við að vera tilbúin að bregðast við því.“


Tengdar fréttir

Íshellan í Grímsvötnum farin að síga

Íshellan í Grímsvötnum er farin að síga. Þetta benda nýjar mælingar Veðurstofu Íslands í Grímsvötnum til. Gæti þetta verið vísbending um að Grímsvatnahlaup sé í vændum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×