Hinn eftirlýsti verður sendur til Póllands vegna stórfelldrar líkamsárásar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. júní 2021 15:59 Maðurinn var dæmdur í nóvember 2018 fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða brotaþolans. vísir Sebastian Kozlowski, sem lýst var eftir af lögreglu í gær, verður sendur til Póllands til að sæta fangelsisvist vegna stórfelldrar líkamsárásar sem leiddi til dauða brotaþola. Hann var dæmdur fyrir málið í nóvember 2018 en hann kom hingað til lands árið 2019 til þess að hefja nýtt líf.
Kozlowski á eftir að afplána rúm sex ár af dómnum. Gefin var út evrópsk handtökuskipun á hendur honum í mars 2020. Hann var handtekinn þann 15. apríl síðastliðinn vegna innbrots og frelsissviptingar og daginn eftir var honum kynnt handtökuskipunin. Taldi sig ekki eiga eftir að afplána í fangelsi Kozlowski mótmælti því harðlega að verða sendur aftur til Póllands vegna slæmra skilyrða í pólskum fangelsum. Hann hafi upplifað mikla vanlíðan þegar hann var í gæsluvarðhaldi árið 2018 og hafi aðstæður verið skelfilegar. Hann segist hafa verið beittur ofbeldi af öðrum föngum og segist enga aðstoð frá fagaðilum fengið. Þetta segir í úrskurði Landsréttar frá því í dag. Hann hafi, þegar hann flutti hingað til lands, ekki gert það í því skyni að fela sig fyrir pólskum yfirvöldum. Hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann væri eftirlýstur fyrr en eftir að hann hafi mætt í skýrslutöku hjá lögreglu í apríl. Þá hafi hann þegar afplánað um sjö mánuði af dómi sínum með gæsluvarðhaldsvist í Póllandi og engar upplýsingar fengið um það hvort eða hvenær hann ætti að klára afplánunina. Hann hafi því verið vongóður um að hann hefði þegar lokið afplánun og væri á skilorði eða reynslulausn varðandi eftirstöðvar dómsins. Gaf sig ekki fram við lögreglu Þá byggði hann mál sitt einnig á því að hann ætti ólokið sakamál hér á landi. Hann teldi því að þær ásakanir væru úr lausu lofti gripnar og honum því nauðsynlegt að vera hér á landi til þess að geta tryggt að málið fái réttlát málalok að honum viðstöddum. Hvorki Héraðsdómur Reykjavíkur né Landsréttur féllust á þetta. Verður Kozlowski því sendur aftur til Póllands. Lýst var eftir Kozlowski í gær þar sem hann hafði verið settur í farbann og honum verið gert að gefa sig fram við lögreglu á hverjum degi sem hann gerði ekki í gær og var því lýst eftir honum.
Dómsmál Pólland Tengdar fréttir Maðurinn sem lýst var eftir kominn í leitirnar Maðurinn sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær er kominn í leitirnar. 8. júní 2021 11:07 Lögregla lýsir eftir Sebastian Kozlowski Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sebastian Kozlowski, 38 ára. 7. júní 2021 13:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Fleiri fréttir Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Sjá meira
Maðurinn sem lýst var eftir kominn í leitirnar Maðurinn sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær er kominn í leitirnar. 8. júní 2021 11:07
Lögregla lýsir eftir Sebastian Kozlowski Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sebastian Kozlowski, 38 ára. 7. júní 2021 13:26