Þyrla Gæslunnar kölluð út vegna göngumanns

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er þyrlan á leiðinni og hún …
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er þyrlan á leiðinni og hún væntanleg á vettvang rúmlega tvö. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út klukkan hálfeitt vegna göngumanns sem hafði runnið niður fjallshlíð í Norðurfirði á Ströndum.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er þyrlan á leiðinni og er hún væntanleg á vettvang upp úr klukkan tvö. 

Göngumennirnir voru tveir og óskaði sá sem slasaðist ekki eftir aðstoð Gæslunnar. Sá slasaði verður fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Ekki fengust upplýsingar um líðan mannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert