Gæsluvarðhald framlengt um tvær vikur Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 26. mars 2024 14:26 Brotaþolar eru fjörutíu talsins. Vísir Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í mansalsmáli tengdu veitingastöðum Pho Vietnam hefur verið framlengt um tvær vikur. Aðstoðaryfirlögrelguþjónn segir rannsókn miða vel en umfang gagna sé mikið og því hægur gangur.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í dag fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í málinu. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur samþykkt kröfuna og verða þremenningarnir - Davíð Viðarsson eigandi Pho Vietnam, kærasta hans og bróðir - í gæsluvarðhaldi til 9. apríl. Davíð situr áfram í einangrun. Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild segir í samtali við fréttastofu að búið sé að úrskurða fólkið í áframhaldandi gæsluvarðhald. Þá staðfestir hún að fjórir brotaþolanna í málinu, sem í heildina eru um fjörutíu talsins, hafi verið yfirheyrðir fyrir dómi eins og greint var frá á RÚV fyrr í dag. „Þau gætu farið eða eitthvað slíkt. Þetta snýst um það að tryggja kannski eitthvað. Þau eru ekki í farbanni, enda brotaþolar. Þetta er bara til að tryggja að við höfum eitthvað, ef eitthvað breytist,“ segir Elín Agnes. Ekki hefur fjölgað í hópi sakborninga að sögn Elínar Agnesar en þeir eru í heildina níu talsins. Sex voru upprunalega úrskurðaðir í gæsluvarðhald en þremur hefur verið sleppt. „Rannsóknin gengur nokkuð vel miðað við allt og allt. Þetta er mikið magn af gögnum til að fara yfir og það tekur tíma,“ segir Elín Agnes.
Mál Davíðs Viðarssonar Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir Kærustuparið og bróðirinn enn í haldi Davíð Viðarsson, kærasta hans og bróðir hans sæta enn einangrun í tengslum við rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi. Bókara fyrirtækja Davíðs, föður hennar og eiginkonu bróður hans hefur verið sleppt. 24. mars 2024 11:19 Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu. 21. mars 2024 07:00 Reynt að hafa áhrif á meinta þolendur mansals Davíðs Ljóst þykir að einhver matar meinta þolendur í mansalsmáli Davíðs Viðarssonar með röngum upplýsingum um stöðu þeirra hér á landi. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir þolendunum hafa verið hótað brottvísun á þeim tíma sem þau störfuðu fyrir fyrirtæki Davíðs. 15. mars 2024 18:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Alþjóðaglæpadómstólinn vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Sjá meira
Kærustuparið og bróðirinn enn í haldi Davíð Viðarsson, kærasta hans og bróðir hans sæta enn einangrun í tengslum við rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi. Bókara fyrirtækja Davíðs, föður hennar og eiginkonu bróður hans hefur verið sleppt. 24. mars 2024 11:19
Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu. 21. mars 2024 07:00
Reynt að hafa áhrif á meinta þolendur mansals Davíðs Ljóst þykir að einhver matar meinta þolendur í mansalsmáli Davíðs Viðarssonar með röngum upplýsingum um stöðu þeirra hér á landi. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir þolendunum hafa verið hótað brottvísun á þeim tíma sem þau störfuðu fyrir fyrirtæki Davíðs. 15. mars 2024 18:31