Viðskipti innlent

Bein út­sending: Út­boðs­þing Sam­taka iðnaðarins

Atli Ísleifsson skrifar
Þingið stendur milli 13 og 15 í dag.
Þingið stendur milli 13 og 15 í dag. SI

Útboðsþing Samtaka iðnaðarins fer fram í beinu streymi í dag á milli 13 og 15. Á þinginu kynna fulltrúar ellefu opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins.

Þingið er haldið í samstarfi við Mannvirki – félag verktaka og Félags vinnuvélaeigenda og verður hægt að fylgjast með útsendningunni í spilara að neðan. 

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er einn þeirra sem flytur ávarp á þinginu, en fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá þingsins

  • Setning – Árni Sigurjónsson,formaður SI
  • Ávarp – Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Reykjavíkurborg – Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir – Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
  • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  • Orka náttúrunnar – Óskar Friðrik Sigmarsson, forstöðumaður Stefnu og árangurs
  • Landsvirkjun – Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
  • Faxaflóahafnir – Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri
  • Vegagerðin – Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
  • Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
  • NLSH – Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs
  • Veitur – Katrín Karlsdóttir, leiðtogi verkefnastjóra
  • Isavia – Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri Hönnunar og framkvæmda
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×