Bæði námsárangur og líðan verri vegna Covid-19 Nadine Guðrún Yaghi og Samúel Karl Ólason skrifa 18. nóvember 2020 19:08
Næstum annar hver nemandi á fyrsta ári í framhaldsskóla metur námsárangur sinn verri en í venjulegu árferði samkvæmt nýrri rannsókn um áhrif kórónuveirufaraldursins á líðan ungmenna. Næstum helmingur segir að faraldurinn hafi slæm áhrif á andlega heilsu. Teymi hjá sálfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur unnið að rannsókninni. Hún er partur af langtímarannsókninni LIFECOURSE, sem er framkvæmd undir forystu Ingu Dóru Sigfúsdóttur, prófessors við sálfræðideildina, og þar sem fylgst hefur verið með börnum fæddum árið 2004 frá því þau voru í móðurkviði. Ákveðið var að rannsaka áhrif kórónuveirufaraldursins á líðan barnanna sem í dag eru 16 ára. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor í sálfræði við HR.Vísir/Egill „Og eru á skrítnum tímum þegar Covid-19 skellur á. Af því að þau eru á síðasta ári í grunnskóla þegar fyrsta bylgjan skellur á og núna eru þau sem fóru í framhaldsskóla á fyrsta ári þar,“ segir Þórhildur Halldórsdóttir, lektor í sálfræði við HR. Í úrtakinu voru 400 ungmenni. Þórhildur segir það hafa komið á óvart hve víðtæk áhrif faraldurinn hefur haft á börnin. „Það sem er mjög sláandi er að um helmingur er að segja að þetta hafi slæm áhrif á andlega heilsu.“ Meira sé um kvíða og depurð. „Ef maður spyr hreint út: „Hvernig eru þið að upplifa þetta? Er aukning í depurð, kvíða, áhyggjum eða því um líkt?“ þá er rosalega hátt hlutfall að segja já við því,“ segir Þórhildur. Vísir/HÞ „Ungmenni hafa áhyggjur af því að aðrir smitast. Þeim finnst voða erfitt að geta ekki hitt vini sína og svo er það þetta breytta fyrirkomulag sem varðar kennslu og bara almennt í rútínu hjá þeim. Það er að hafa mjög slæm áhrif.“ Vísir/HÞ Hér sjást breytingar á því hvernig börnin upplifa námsárangur sinn í fyrstu og þriðju bylgju. Í fyrstu bylgju upplifðu 32 prósent námsárangurinn verri en í venjulegu árferði en 43,9 prósent upplifa hann verri í þriðju bylgju. Vísir/HÞ „Núna í þriðju bylgju er þetta búið að hækka og það er alveg einn af hverjum tveimur til þremur sem segir þetta hafa slæm áhrif á námsárangur.“ Krakkarnir séu í fyrsta sinn í Menntaskóla og líklegt að ekki myndist sterk sambönd við kennara samnemendur. „Svo er þetta líka sérstakur aldur að því leyti að það eru margar líffræðilegar breytingar að eiga sér stað,“ segir Þórhildur. Fylgst verður með langtímaáhrifum hjá hópnum og þau spurð aftur eftir nokkra mánuði.
Skóla - og menntamál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Erlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Katrín á toppnum um allt land Innlent Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent Fleiri fréttir Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Sjá meira
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent