„Buttergate“ skekur Kanada: Smjörið bráðnar ekki og bændur skipa nefnd Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. febrúar 2021 22:28 Hver kannast ekki við ergelsið sem skapast þegar hart smjörið vill ekki á brauðið? Ein er sú spurning sem virðist nú brenna á kanadískum matreiðslumönnum, matreiðslubókahöfundum og almennum neytendum: Af hverju mýkist smjörið ekki lengur við stofuhita?
Miklar deilur hafa skapast um málið, meðal annars á samfélagsmiðlum, þar sem finna má færslur undir myllumerkinu #buttergate. Umræðurnar ku mega rekja til tísts matreiðslubókahöfundarins Julie Van Rosendaal, sem varpaði fram þeirri spurningu fyrr í mánuðinum hvort aðrir hefðu tekið eftir því að smjörið mýktist ekki, jafnvel þótt það væri geymt við stofuhita. Something is up with our butter supply, and I’m going to get to the bottom of it. Have you noticed it’s no longer soft at room temperature? Watery? Rubbery? pic.twitter.com/AblDzGiRQY— Julie Van Rosendaal (@dinnerwithjulie) February 5, 2021 Mörg hundruð manns könnuðust við að hafa upplifað sömu furðulegheit og áður en langt um leið var komin fram samsæriskenning um orsök hins síharða smjörs. Samkvæmt kanadísku mjólkurbændasamtökunum jókst eftirspurn eftir smjöri um 12 prósent í fyrra, líklega vegna kórónuveirufaraldursins. Til að mæta aukinni eftirspurn gripu margir bændur til ýmissa ráða til að auka framleiðsluna. Í marga áratugi hafa kúm verið gefin bætiefni úr pálmaolíu til að stuðla að aukinni mjólkuframleiðslu og hærri fituprósentu. Sumir sérfræðingar segja bætiefnin auka hlutfall mettaðrar fitu í mjólkinni en fyrrnefnd samsæriskenning gengur út á að þar sem þetta hlutfall hafi hækkað þurfi meiri hita til að bræða smjörið og því smyrjist það ekki jafn vel og áður. Sylvain Charlebois, framkvæmdastjóri rannsóknarstofu landbúnaðarframleiðslu við Dalhousie University, segir smjörið sannarlega hafa harðnað síðustu misseri. Notkun pálmaolíu við mjólkurframleiðslu sé lögleg en siðlaus þar sem olían getur aukið líkurnar á hjartasjúkdómum og framleiðsla hennar sé afar slæm fyrir umhverfið. Indeed. Most Canadians may not understand supply management, but they certainty understand two things:1) Butter should not be destroying toast...2) Palm oil is bad... https://t.co/2Xs1xwJSNn— The Food Professor (@FoodProfessor) February 23, 2021 Kanadískir mjólkurbændur neita ásökununum og benda á að notkun pálmaolíunnar þekkst víðar, meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þeir hafa engu að síður ákveðið að setja á laggirnar nefnd sem á að komast til botns í smjörmálinu mikla. BBC greindi frá.
Landbúnaður Kanada Samfélagsmiðlar Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Fleiri fréttir Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Sjá meira