„Veiðin hefur verið jöfn og góð“

Mjög góð kolmunnaveiði hefur verið í færeysku lögsögunni að undanförnu.
Mjög góð kolmunnaveiði hefur verið í færeysku lögsögunni að undanförnu. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Helgi Freyr Ólason

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti NK, er ánægður með gang kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni og segir í færslu á vef Síldarvinnslunnar að betur gangi nú hjá íslensku skipunum en undanfarin ár.

Beitir er nú statt mitt á milli Færeyja og Íslands og er á leið til hafnar í Neskaupstað með 3.000 tonn af kolmunna. Tómas kveðst gera ráð fyrir að skipið leggi við bryggju um miðnætti í kvöld. „Þetta er fjórða veiðiferð Beitis eftir að kolmunnaveiðarnar hófust og ávallt hefur verið komið með um og yfir 3.000 tonna afla til löndunar.“

„Veiðin hefur verið jöfn og góð, allt upp í mokveiði, og veðrið hefur leikið við okkur. Staðreyndin er sú að kolmunnaveiðin hefur gengið betur hjá íslensku skipunum í ár en undanfarin ár og fiskurinn er einnig betri,“ segir hann.

Aflinn sem Beitir er nú á landleið með fékkst í sjö holum og voru holin á bilinu 300 og 700 tonn, að sögn Tómasar. „Venjulega var dregið í sex til átta tíma þannig að það er alls ekki lengi dregið. Alltaf er verið að bæta veiðibúnaðinn og í þessum túr vorum við í fyrsta sinn með nýjan léttan poka frá Hampiðjunni og hann gafst býsna vel. Núna vorum við að veiðum suðaustur af Færeyjum, nærri miðlínu á milli Færeyja og Skotlands. Útlit fyrir áframhaldandi veiði er bara gott og menn ánægðir með árangurinn hingað til. Það er ekki hægt að vera annað en ánægður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.239 kg
Þorskur 51 kg
Rauðmagi 30 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.351 kg
18.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.306 kg
Samtals 1.306 kg
18.5.24 Fíi ÞH 11 Grásleppunet
Grásleppa 818 kg
Samtals 818 kg
18.5.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.339 kg
Samtals 1.339 kg
18.5.24 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Ýsa 1.916 kg
Þorskur 46 kg
Skarkoli 39 kg
Ufsi 29 kg
Langa 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.036 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.239 kg
Þorskur 51 kg
Rauðmagi 30 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.351 kg
18.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.306 kg
Samtals 1.306 kg
18.5.24 Fíi ÞH 11 Grásleppunet
Grásleppa 818 kg
Samtals 818 kg
18.5.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.339 kg
Samtals 1.339 kg
18.5.24 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Ýsa 1.916 kg
Þorskur 46 kg
Skarkoli 39 kg
Ufsi 29 kg
Langa 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.036 kg

Skoða allar landanir »