Sjö lífstíðardómar fyrir að myrða sjö skjólstæðinga Vésteinn Örn Pétursson skrifar 11. maí 2021 23:35 Verjendur Mays segja hana meðal annars glíma við áfallastreituröskun eftir að hún sinnti herþjónustu í Írak 2003 til 2004. AP Fyrrverandi sjúkraliði í Vestur-Virginíuríki í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í sjöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða aldraða skjólstæðinga sína á spítala fyrir bandaríska uppgjafarhermenn.
Konan, sem heitir Reta Mays, hafði fyrir dómi gengist við því að hafa orðið sjö skjólstæðingum sínum að bana með því að sprauta þá með insúlíni. Önnur 20 ár bættust við dóminn yfir henni fyrir tilraun til að myrða þann áttunda með sama hætti. Dómarinn sem kvað upp dóminn yfir hinni 46 ára Mays lýsti henni sem „skrímsli af verstu gerð.“ Fórnarlömb Mays voru á aldrinum 81 til 96 ára og höfðu barist undir merkjum Bandaríkjanna á fyrri árum, meðal annars í síðari heimsstyrjöld og Kóreu- og Víetnamsstríðunum. Saksóknarar segja hana hafa sprautað fórnarlömb sín með insúlíni að óþörfu. Það leiddi til skyndilegs blóðsykurfalls sem dró fórnarlömbin til dauða. Mays grét þegar hún ávarpaði dóminn. „Ég get ekkert sagt sem getur veitt aðstandendum nokkra huggun. Ég get aðeins sagt að mér þykir fyrir því að hafa valdið þeim og fjölskyldu minni sársauka. Verjendur Mays segja hana glíma við geðræn vandamál, meðal annars áfallastreituröskun, eftir að hún var í Írak á tíma sínum í bandaríska hernum 2003 til 2004. Dómari féllst á það, en sagði það þó ekki geta útskýrt eða afsakað gjörðir hennar. Fyrir dómi kom meðal annars fram að Mays hefði notað vinnutölvu sína til þess að leita að upplýsingum um kvenkyns raðmorðingja á netinu. Þá er hún þrisvar sögð hafa logið að rannsóknarlögreglunni um sinn hlut í málinu.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Grunaðir um rán í miðbænum Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Erlent Fleiri fréttir Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Sjá meira