Flakkar á milli stórliða

Arturo Vidal.
Arturo Vidal. AFP

Arturo Vidal, knattspyrnumaður frá Chile, heldur áfram að færa sig á milli stórliða í íþróttinni og er nú kominn aftur til Ítalíu. 

Vidal er að færa sig frá Barcelona til Inter í Mílanó og fer í læknisskoðun í dag. Talið er að gengið verði frá félagaskiptunum á morgun. 

Vidal er 33 ára gamall og hefur leikið fyrir Leverkusen, Juventus, Bayern München, Barcelona og næst Inter á ferli sínum í Evrópu. Ekki slæmur listi yfir vinnustaði.

Hann stóð ekki undir væntingum hjá Barcelona en hjá Inter hittir hann fyrir knattspyrnustjórann Antonio Conte sem stýrði Vidal áður hjá Juventus. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert