Betra fyrir Englendinga að vinna ekki riðilinn sinn eins og á HM 2018 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júní 2021 14:00 Englendingar hefja leik á EM gegn Króötum á sunnudaginn. getty/Laurence Griffiths Það versta sem gæti gerst fyrir Englendinga á EM væri að vinna riðilinn sinn. Þá mæta þeir liði úr dauðariðli mótsins. England er í D-riðli EM ásamt Króatíu, Skotlandi og Tékklandi. Sigurvegari riðilsins mætir liðinu sem endar í 2. sæti F-riðils. Það er dauðariðill mótsins en þar eru sigurvegarar síðustu þriggja stórmóta, Frakkland, Portúgal og Þýskaland, og svo Ungverjaland sem flestir búast við að reki lestina í riðlinum. Liðið sem endar í 2. sæti D-riðils mætir hins vegar liðinu sem endar í 2. sæti E-riðils. Í þeim riðli eru Spánn, Svíþjóð, Pólland og Slóvakía. Líklegast er að 2. sætið falli annað hvort Svíum eða Pólverjum í skaut. Á HM 2018 naut England góðs af því að vinna ekki sinn riðil. England endaði í 2. sæti síns riðils á eftir Belgíu og fyrir vikið var leið þeirra ensku í undanúrslitin greiðari en ella. Í sextán liða úrslitunum mætti England Kólumbíu og Svíþjóð í átta liða úrslitunum. Á meðan mætti Belgía Japan í sextán liða úrslitunum og Brasilíu í átta liða úrslitunum. Í undanúrslitunum mætti England Króatíu á meðan Belgía lék gegn Frakklandi. Bæði lið töpuðu þar. Ef Englendingar vinna riðilinn sinn á EM fá þeir reyndar leik á Wembley í sextán liða úrslitunum. En ef þeir lenda í 2. sæti mæta þeir liðinu úr 2. sæti E-riðils í Kaupmannahöfn svo ferðalagið yrði ekki langt. Fyrsti leikur Englands á EM er gegn Króatíu á sunnudaginn. Leikurinn fer fram á Wembley eins og allir þrír leikir Englendinga í riðlakeppninni.
England er í D-riðli EM ásamt Króatíu, Skotlandi og Tékklandi. Sigurvegari riðilsins mætir liðinu sem endar í 2. sæti F-riðils. Það er dauðariðill mótsins en þar eru sigurvegarar síðustu þriggja stórmóta, Frakkland, Portúgal og Þýskaland, og svo Ungverjaland sem flestir búast við að reki lestina í riðlinum. Liðið sem endar í 2. sæti D-riðils mætir hins vegar liðinu sem endar í 2. sæti E-riðils. Í þeim riðli eru Spánn, Svíþjóð, Pólland og Slóvakía. Líklegast er að 2. sætið falli annað hvort Svíum eða Pólverjum í skaut. Á HM 2018 naut England góðs af því að vinna ekki sinn riðil. England endaði í 2. sæti síns riðils á eftir Belgíu og fyrir vikið var leið þeirra ensku í undanúrslitin greiðari en ella. Í sextán liða úrslitunum mætti England Kólumbíu og Svíþjóð í átta liða úrslitunum. Á meðan mætti Belgía Japan í sextán liða úrslitunum og Brasilíu í átta liða úrslitunum. Í undanúrslitunum mætti England Króatíu á meðan Belgía lék gegn Frakklandi. Bæði lið töpuðu þar. Ef Englendingar vinna riðilinn sinn á EM fá þeir reyndar leik á Wembley í sextán liða úrslitunum. En ef þeir lenda í 2. sæti mæta þeir liðinu úr 2. sæti E-riðils í Kaupmannahöfn svo ferðalagið yrði ekki langt. Fyrsti leikur Englands á EM er gegn Króatíu á sunnudaginn. Leikurinn fer fram á Wembley eins og allir þrír leikir Englendinga í riðlakeppninni. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn Sjá meira