Óléttar og óbólusettar taka aftur upp grímuna og halda sig heima Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júlí 2021 20:00 María Dögg Nelson og Ingibjörg Edda Snorradóttir ásamt kærustum sínum. Aðsendar Barnshafandi konur sem ekki hafa getað fengið bólusetningu upplifa sig nokkuð berskjaldaðar fyrir kórónuveirunni, nú þegar smituðum fjölgar. Þær hafa haldið sig til hlés undanfarna daga og stefna á meiri einangrun síðustu vikur meðgöngunnar.
Landlæknisembættið mælir ekki með því að barnshafandi konur þiggi bólusetningu við Covid-19 nema þær séu í sérstökum áhættuhópi. Það má því ætla að fjöldi kvenna sem orðið hafi ófrískar síðustu mánuði sé óvarður gegn veirunni. Tvær óbólusettar konur sem báðar eru langt komnar með sitt fyrsta barn hafa haldið sig til hlés og gripið til ýmissa ráðstafana til að verjast veirunni. „Ég er byrjuð að ganga aftur með grímu og ég og kærastinn minn erum búin að vera að reyna að halda okkur til hlés, slepptum því að fara í þrítugsafmæli sem okkur var boðið í eftir að þessi smit komu upp og hann er með grímu í vinnunni, þótt að hann sé bólusettur,“ segir María Dögg Nelson, leikkona og framkvæmdastjóri. Spennt fyrir „Íslandsbúbblunni“ Þá hafi hún fundið fyrir hræðsu, verandi óvarin. „Auðvitað er maður náttúrulega hræddari því maður veit ekkert hvaða áhrif það hefði, bæði bara að fá háan hita er ekki sniðugt þegar þú ert komin þetta langt á leið og maður veit ekki hvaða áhrif það hefði á barnið,“ segir María. Ástandið núna hafi komið þeim í opna skjöldu. „Ég er alveg mjög hissa og maður var byrjaður að venjast því að lífið væri byrjað að verða gott. Ég er nýflutt heim frá Danmörku og var spennt að komast í „Íslandsbúbbluna“ en nú er maður að verða óöruggari aftur,“ segir Ingibjörg Edda Snorradóttir, tölvunarfræðingur. Hræddar við aðgerðir Aðgerðir á borð við þær sem í gildi voru á Landspítala þegar faraldurinn var í hámarki í fyrra hræði þær einnig. „Ég er mjög kvíðin fyrir því og ég vona innilega að maður geti fengið maka sinn með á fæðingarstað allan tímann,“ segir Ingibjörg. „Ég er aðallega hrædd um að það komi eitthvað upp í tengslum við fæðinguna sjálfa, annað hvort að ég verði komin með Covid þegar að því kemur eða það verði komnar hertari aðgerðir. Þeim mun nær settum degi þeim mun óöruggari verður maður, sérstaklega ef ástandið er eins og það er núna,“ segir María.
Börn og uppeldi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Fleiri fréttir Hyggst skipa sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Pallborð í dag og niðurstöður nýrrar könnunar Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Sjá meira