Freyr djúpt snortinn: „Höfum lagt allt í þessa vegferð“ Aron Guðmundsson skrifar 3. júní 2023 17:38 Freyr tolleraður af leikmönnum Lyngby eftir leik dagsins Vísir/Getty Freyr Alexandersson, þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby í knattspyrnu, segist eiga erfitt með að lýsa kraftaverki dagsins þegar að Lyngby hélt sæti sínu í deild þeirra bestu í Danmörku.
Lyngby heldur sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni eftir fádæma dramatík í lokaumferðinni. Fyrir lokaumferðina var spennan gríðarleg. Álaborg, Lyngby og Horsens voru öll með 28 stig en tvö lið falla niður í næst efstu deild. Álaborg var með bestu markatöluna en Lyngby og Horsens voru í fallsætunum. Lyngby þurfti að treysta á að Silkeborg myndi vinna Álaborg og um leið þurfti Lyngby að ná hið minnsta í jafntefli við Horsens. Svo varð raunin. Lyngby gerði markalaust jafntefli við Horsens á meðan að Alexander Lind skoraði sigurmark Silkeborg gegn Álaborg. Horsens og Álaborg falla því niður í næst efstu deild. „Ég spurði um tíu mismunandi einstaklinga að því hvort Silkeborg hefði í raun og veru náð að koma inn marki. Ég trúði því ekki til að byrja með,“ sagði Freyr í samtali við Bold.dk eftir kraftaverkið mikla. Tilfinningarnar hafi síðan tekið yfir í leikslok. „Þegar að leikurinn hér var flautaður af var nú þegar búið að flauta til leiksloka í Álaborg og við vissum hver staðan var. Ég varð djúpt snortinn á þessari stundu vegna þess að við höfum lagt allt í þessa vegferð, líkamlega og andlega. Fólk hefur lagt á sig alls konar fórnir fyrir þetta.“ Árangur íslenska landsliðsins á EM 2016 í knattspyrnu sé það eina til þessa sem hafi vakið uppi hjá honum álíka tilfinningar og hann fann fyrir í dag. „Þetta er einstakt og skiptir mig ótrúlega miklu máli. Ég á erfitt með að lýsa þessu. Þetta er svo stór stund og ég er ótrúlega ánægður fyrir hönd allra í Lyngby.“ ET HISTORISK ØJEBLIK #SammenForLyngby pic.twitter.com/YzlFAuQJBt— Lyngby Boldklub (@LyngbyBoldklub) June 3, 2023
Danski boltinn Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira