Eðlilegar skýringar á því að margir hafi fengið ótímabæra boðun í bólusetningu Eiður Þór Árnason skrifar 2. maí 2021 23:00 Metvika er fram undan í bólusetningum í Laugardalshöll. Vísir/vilhelm Borið hefur á því að fólk undir fimmtugsaldri sem kannast ekki við að tilheyra áhættuhópum hafi verið boðað óvænt í bólusetningu gegn Covid-19 á næstu dögum.
Smitsjúkdómalæknir hjá landlæknisembættinu segir að ný úrvinnsluaðferð geri það að verkum að allir sem fái ávísað lyfjum sem séu í einhverjum tilvikum gefin fólki í aukinni áhættu fái nú boð með þeim áhættuhópi. Fram að þessu hefur fyrst og fremst verið tekið mið af sjúkdómsgreiningum við úrvinnslu lista yfir fólk í áhættuhópum en í síðastliðinni viku var einnig byrjað að taka mið af lyfjaávísunum. Markmiðið með nýju aðferðinni er ná til allra sem gætu mögulega verið í aukinni áhættu á alvarlegri Covid-sýkingu en marga vantaði áður á listanna. Undanfarið hefur verið til umræðu að hefja handahófskenndar bólusetningar og hafa sumir ályktað að óvænt bólusetningarboð sé til marks um að sú breyting sé komin til framkvæmda. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, staðfestir í samtali við Vísi að svo sé ekki. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir smitsjúkdómalæknir.Lögreglan Marga vantaði á listana „Það vantaði svo marga sem eru í áhættuhópum í upphaflegu úttektina úr tölvukerfinu hjá okkur svo við bættum við annarri aðferð sem byggir á lyfjaávísunum. Inn í þeim lyfjaávísunum eru ýmis lyf sem eru líka notuð í ýmsum tilgangi sem eru ekki merki um að fólk sé með aukna áhættu á alvarlegri Covid-sýkingu,“ segir Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, smitsjúkdómalæknir á sóttvarnasviði landlæknis. Eitt dæmi um það séu blóðþrýstingslyf sem eru einnig notuð sem fyrirbyggjandi meðferð fyrir mígreni. „Þess vegna er möguleiki að það verði einhverjir einstaklingar boðaðir sem telja sig ekki vera í áhættu.“ Kamilla segir að þeir einstaklingar geti valið að sleppa því að mæta og bíða frekar eftir því að vera boðaðir með sínum aldurshópi. Allir sem hundsa fyrsta boðið verða boðaðir aftur nema þau tilkynni sérstaklega að þau ætli ekki að þiggja bólusetningu. Hún bætir við að töluverður hópur hafi bæst við forgangslistana eftir að lyfjalistunum var bætt við. „Það vantaði til dæmis alveg ótrúlega marga sykursjúka í upphaflegu úttektina sem ég hef ekki góðar skýringar á.“ Munu passa að enginn verði út undan Úttekt verður gerð á nýju aðferðinni til að sjá hvort að einhverjir hafi aftur orðið út undan. „Ef það kemur í ljós að þetta er ennþá gallað þá verðum við bara að fara út í það að fá lista frá læknunum sem er svolítið flókið því það er engin örugg skilaleið þegar til staðar,“ segir Kamilla. Slíkt gæti tafið það að bólusetning fólks í áhættuhópum klárist þar sem embættið þyrfti að finna nýjar aðferðir til að safna gögnunum.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Sjá meira