Fullbólusettur Ingvi Hrafn vill komast í sund núna Jakob Bjarnar skrifar 7. apríl 2021 13:49 Ingvi Hrafn segir það algjört lykilatriði, þegar litið er til heilsu eldri borgara, að fara að hleypa þeim í sund. Vísir/Vilhelm/aðsend Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara segir það góða hugmynd að hleypa gráa hernum í sund en á því er þó einn hængur. „
Nú þegar búið er að bólusetja 70 ára og eldri má ekki opna sundlaugar fyrir okkur? Algerlega lífsnauðsynlegt fyrir heilsuvernd eldri borgara, sem stunda sund þúsundum saman,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsmaður á Facebook-síðu sinni. Hann á bágt með að skilja það af hverju gamlingjunum er haldið frá klórnum í laugunum. Og Þórunn segir þetta góða hugmynd hjá Ingva Hrafni. „Það eru að koma fram núna allskonar tillögur út af þessum hópi sem er búin að fá bólusetningar,“ segir Þórunn í samtali við Vísi. Hún segir að meginþorri yfir sjötugt sé búinn að fá aðra sprautuna eða báðar og á Akureyri eru menn byrjaðir að bólusetja niður í 68 ára aldur. Ekki búið að bólusetja alla sem eru yfir sjötugu „En ef þú ert með AstraZeneka eru þrír mánuðir á milli fyrri sprautu og þeirrar seinni. Það er að tefja að ekki eru allir staddir á sama stað. Það myndi algjörlega rugla þennan hóp; af hverju hinir mega fara en ekki ég?“ Þórunn segir að enn séu ekki allir yfir sjötugt búnir að fá báðar sprauturnar. Þeir sem fá Pfiser og Moderna séu búnir en ekki þeir sem fá AstraZeneca. Þórunn Sveinbjörnsdóttir segir að ef nú yrði farið í að hleypa sjötugum og eldri í laugarnar myndi það rugla hópinn í ríminu því ekki eru allir í þeim aldursflokki búnir að fá fulla bólusetningu.vísir/arnar „Og er því ekki komið með fullt ónæmi. Ef við værum öll í sama pakka og öll bólusett fer að koma upp sú staða,“ segir Þórunn. Ingvi Hrafn aðeins of snöggur til með sína góðu hugmynd Hún segir jafnframt að nú þurfi að snúa einu og öðru í gang svo sem mörgum aðalfundum í félögum eldri borgara sem hafa frestast. Þórunn gerir ráð fyrir því að helft eldri borgara verði að fullu bólusett í lok maí. „Ingvi Hrafn er aðeins of snöggur út af því að bólefnin eru með þessa hegðun að vera ekki eins. En hugmyndin er góð, þekkja allir þessa vanlíðan að komast ekki í hreyfingu.“ Þegar Vísir náði tali af Þórunni var hún á fjarfundi þar sem verið var að kynna viðamikla skýrslu, rannsókn sem félagsvísindastofnun gerir og heitir Hagir og líðan eldri borgara. Greinilegt sé að heilsan sé lakari en fyrir fjórum árum og Þórunn segir að það megi rekja beint til Covid-19 og einangrunar sem henni fylgir.
Eldri borgarar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Sundlaugar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira