Kaupmáttur launa aldrei verið hærri þrátt fyrir aukna verðbólgu Eiður Þór Árnason skrifar 24. febrúar 2021 11:58 Kjarasamningsbundnar launahækkanir tóku víða gildi eftir áramót. Vísir/vilhelm Laun hækkuðu að jafnaði um 3,7% á milli desember og janúar samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands og hefur vísitalan hækkað um 10,3% síðustu 12 mánuði. Er þetta mesta hækkun launavísitölunnar í einum mánuði síðan í júní 2011 og mesta árshækkun frá því í október 2016. Kaupmáttaraukningin á milli ára var 5,8% og hefur kaupmáttur launa aldrei verið hærri en nú í janúar.
Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Rekja má hækkunina milli desember og janúar til þess að 1. janúar urðu launahækkanir á nær öllum vinnumarkaðnum á sama tíma. Lægstu laun innan kauptaxtakerfisins hækkuðu um 24 þúsund krónur á mánuði og hærri laun um 15.750 krónur. Töluverð hækkun launavísitölunnar í janúar kom því ekki á óvart og mögulega mun hún hækka eitthvað í febrúar vegna þessa, að sögn Hagfræðideildar Landsbankans. Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,3% milli janúarmánaða 2019 og 2020 en launavísitalan hækkaði um 10,3% á sama tímabili þannig að kaupmáttaraukning milli ára er 5,8%. „Kaupmáttur launa er því áfram mikill í sögulegu samhengi, þrátt fyrir aukna verðbólgu á síðustu mánuðum. Kaupmáttarvísitala hefur haldið nokkuð vel síðustu mánuði og hefur kaupmáttur launa aldrei verið hærri en nú í janúar.“ Stytting vinnuvikunnar ígildi launahækkunar Þá bent á í Hagsjá Landsbankans að stytting vinnutíma sé talin ígildi launabreytinga og hafi því áhrif á launavísitölu. Þann 1. janúar tóku gildi ákvæði í kjarasamningum á opinberum markaði sem styttu vinnuviku um þrettán mínútur á dag hjá launafólki á mánaðarlaunum í dagvinnu. Áhrif styttingar vinnutíma á launavísitölu á tímabilinu frá 2019 fram til nóvember 2020 hafa verið metin um 0,8 prósentustig. Fyrsta mat Hagstofunnar á áhrifum vinnutímastyttingar í janúar 2021 á launavísitöluna er um 0,4 prósentustig, eða rúmlega 10% af breytingu vísitölunnar um áramót. Í nóvember höfðu laun á opinbera markaðnum hækkað um 9,9% milli ára, öllu meira hjá sveitarfélögunum en ríkinu. Á sama tíma hækkuðu laun á almenna markaðnum um 6,4%, af því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans.
Vinnumarkaður Íslenska krónan Fjármál heimilisins Kjaramál Tengdar fréttir Óleiðréttur launamunur kynja 14 prósent árið 2019 Óleiðréttur launamunur kynjanna mældist 14% árið 2019 en var 13,6% árið 2018 og hafði þá lækkað um 1,4 prósentustig frá fyrra ári. Launamunur árið 2019 fór stigvaxandi eftir aldri og var munurinn 1,9% á meðal 24 ára og yngri, 13,3% í aldurshópnum 35-44 ára og 21,2% á meðal 55-64 ára. 27. janúar 2021 09:23 Kaupmáttur launa aldrei hærri Kaupmáttur launa hefur aldrei verið hærri en kemur líklega til með að dragast saman á næstunni að mati hagfræðings. Stjórnendur fyrirtækja gætu séð hag í því að segja upp kjarasamningum þar sem margar forsendur séu brostnar. Vinnuveitendur hafi þó sýnt að þeir vilji halda friðinn á vinnumarkaði. 23. júlí 2020 19:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Viðskipti innlent Eignast Securitas að fullu Viðskipti innlent Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eignast Securitas að fullu Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Sjá meira
Óleiðréttur launamunur kynja 14 prósent árið 2019 Óleiðréttur launamunur kynjanna mældist 14% árið 2019 en var 13,6% árið 2018 og hafði þá lækkað um 1,4 prósentustig frá fyrra ári. Launamunur árið 2019 fór stigvaxandi eftir aldri og var munurinn 1,9% á meðal 24 ára og yngri, 13,3% í aldurshópnum 35-44 ára og 21,2% á meðal 55-64 ára. 27. janúar 2021 09:23
Kaupmáttur launa aldrei hærri Kaupmáttur launa hefur aldrei verið hærri en kemur líklega til með að dragast saman á næstunni að mati hagfræðings. Stjórnendur fyrirtækja gætu séð hag í því að segja upp kjarasamningum þar sem margar forsendur séu brostnar. Vinnuveitendur hafi þó sýnt að þeir vilji halda friðinn á vinnumarkaði. 23. júlí 2020 19:56