Alexandra alsæl að koma heim: Þurfti að pressa smá á þá Valur Páll Eiríksson skrifar 13. maí 2022 22:15 Alexandra var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Breiðabliki í kvöld. Vísir/Bára Dröfn Alexandra Jóhannsdóttir kynnti sig til leiks í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld með marki eftir aðeins fimm mínútna leik í 4-0 sigri Breiðabliks á KR í Frostaskjóli. Alexandra hafði aðeins mætt á tvær æfingar með liðinu fyrir leik kvöldsins.
Alexandra gekk frá lánssamningi til Breiðabliks frá Frankfurt í Þýskalandi á lokadegi félagsskiptagluggans, á miðvikudaginn var, og mætti beint inn í byrjunarliðið. Það tók hana ekki langan tíma að þakka traustið, og þykir henni gott að mæta í heimahagana. „Þetta er bara eins og að koma heim. Mér líður ótrúlega vel með að mæta, ég þekki eiginlega allar stelpurnar í liðinu og búin að spila með þeim áður.“ „Ég náði tveimur æfingum fyrir leik, einni á þriðjudaginn og annarri í gær - en það er bara fínt að fá að byrja leikinn og komast strax inn í þetta.“ Aðspurð um leik kvöldsins sagði Alexandra: „Mér fannst við kannski hafa getað sett fleiri mörk og mátt hægja stundum aðeins á tempoinu, en þær loka samt vel og við miðjumennirnir þurftum að koma dálítið neðarlega að sækja boltann, þegar við vildum ef til vill vera ofar. En, fjögur mörk, maður getur ekki kvartað yfir því.“ KR komst nærri því að minnka muninn eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og liðið hafði skapað sér góðar stöður, sem þó nýttust illa, eftir skyndisóknir. Alexandra segir Blika þurfa að bregðast við slíku. „Við töluðum einmitt um það í hálfleik, þetta er bara kollurinn á okkur sem veldur því. Bara einbeitingarleysi, sem er eitthvað sem við þurfum að laga. En við höldum ágætlega í boltann og þær skapa ekki mikið af færum,“ Erfitt að spila lítið Alexandra var lykilmaður í liði Breiðabliks sem vann Íslandsmeistaratitilinn 2020 og fór í kjölfarið til Frankfurt í Þýskalandi. Hún hefur ekki fengið mikið að spila á yfirstandandi leiktíð og óskaði eftir því að komast heim til Blika.“ Aðspurð um aðdragandann segir Alexandra: „Ég fékk þetta ekki staðfest fyrr en síðasta laugardag en þetta er búið að vera aðeins í umræðunni, svona þannig lagað, það er svolítið síðan að ég bað um að fá að fara en ég fékk ekki staðfest fyrr en í síðustu viku.“ En þurfti hún að setja mikla pressu til að ná skiptunum í gegn? „Já, ég þurfti að pressa smá á þá. En ég skil þá svo sem alveg að vilja ekki hleypa mér strax þegar það er stutt eftir af mótinu og við erum í bullandi séns á Meistaradeildarsæti,“ segir Alexandra sem segist hafa Evrópumeistaramót kvenna á Englandi í sumar hafa sitt að segja þegar að ákvörðuninni kom. „Ég er ekki búin að vera að spila mikið á tímabilinu, ég er búin að vera að koma mikið inn á og ekki byrjað marga leiki. Auðvitað er EM í huga líka að fá mínútur í lappirnar, í staðinn fyrir að vera að hlaupa núna, að fá að spila leiki og svoleiðis,“ „Auðvitað var erfitt að vera ekki að spila og maður myndi vilja hafa fengið að spila meira en svona er þetta bara.“
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Fleiri fréttir Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Sjá meira