Fótbolti

Stórsigrar hjá Þýskalandi og Færeyjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Werner, Sane og Muller komust allir á blað í kvöld.
Werner, Sane og Muller komust allir á blað í kvöld. Federico Gambarini/Getty

Þýskaland og Færeyjar unnu í kvöld stórsigra er fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram en mörg lið eru að undirbúa sig fyrir EM sem hefst um helgina.

Þýskaland lenti í nákvæmlega engum vandræðum með Lettland en lokatölur urðu 7-1 eftir að staðan var 5-0 í hálfleik.

Robin Gosens, Ilkay Gundögan, Thomas Muller, Serge Gnabry og sjálfsmark Robertz Ozols voru mörk fyrri hálfleik.

Timo Werner kom inn á í hálfleik og bætti við sjötta markinu í byrjun síðari hálfleiks áður en Lettar minnkuðu muninn með svakalega flottu marki.

Leroy Sane skoraði sjöunda markið og var þar af leiðandi sjöundi markaskorari Þýskalands í kvöld.

Færeyingar unnu 5-1 sigur á Liechtenstein eftir að hafa lent 1-0 undir á nítjándu mínútu.

Klaemint Olsen jafnaði metin fjórum mínútum síðar og Brandur Olsen skoraði tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks.

Olsen bætti við fjórða markinu og Viljormur Davidsen gerði fimmta markið úr vítaspyrnu sem Ívar Orri Kristjánsson dæmdi.

Serbía og Jamaíka gerðu 1-1 jafntefli, Úkraína vann 4-0 sigur á Kýpur og Andorra og Gíbraltar gerðu markalaust jafntefli.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×