Umdeild veltutrygging nær aðeins til ferðaþjónustufyrirtækja Sylvía Hall skrifar 5. ágúst 2020 18:00 Veltutryggingin verður innleidd 1. október næstkomandi. Já.is
Veltutrygging sem Borgun tilkynnti á föstudag verður aðeins notuð í viðskiptum ferðaþjónustufyrirtækja svo hægt sé að standa við skuldbindingar við korthafa. Breytingin hefur því ekki áhrif á 97 prósent viðskiptavina fyrirtækisins að því er fram kemur í tilkynningu til viðskiptavina. Töluvert hefur verið fjallað um veltutrygginguna undanfarna daga þar sem óljóst var hvort hún næði til allra viðskiptavina Borgunar. Til að mynda var það skilningur Samtaka verslunar og þjónustu að breytingin næði til allra atvinnugreina og töldu þau ómögulegt að verða við þessum kröfum. Erfiðlega gekk að fá svör frá Borgun varðandi breytinguna en póstur var sendur til viðskiptavina í dag. Þar segir að ekki sé um skilmálabreytingu að ræða heldur sé þetta aðgerð til þess að lágmarka áhættu. Þannig sé hægt að standa við skuldbindingar við korthafa sem hafa keypt vörur og þjónustu fram í tímann. „Tölvupósturinn, sem fjölmiðlar virðast hafa byggt fréttir sínar á, var sendur á um 3% viðskiptavina Borgunar og á einungis við um þá. Allt eru þetta aðilar sem eru í þeirri stöðu að selja mestmegnis þjónustu áður en hún er veitt. Ekki er um skilmálabreytingu að ræða, líkt og ranglega hefur komið fram, heldur er um að ræða aðgerð sem er heimil í gildandi skilmálum og snýr að því að lágmarka áhættu,“ segir í tilkynningu Borgunar. Þá er ítrekað að engum greiðslum verði haldið eftir vegna vöru eða þjónustu sem hefur nú þegar verið veitt. Á það einnig við um fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Tengdar fréttir Reyni eftir fremsta megni að halda ekki eftir greiðslum Greiðslumiðlunarfyrirtækin Valitor og Kortaþjónustan segjast ekki ætla að ganga jafn langt og Borgun hefur gert þegar kemur að svokallaðri veltutryggingu. 5. ágúst 2020 08:03 Gagnrýnir nýja skilmála Borgunar harðlega Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir greiðslumiðlunarfyrirtæki ekki í rétti til að halda eftir greiðslum fyrir veitta þjónustu. 4. ágúst 2020 06:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira
Reyni eftir fremsta megni að halda ekki eftir greiðslum Greiðslumiðlunarfyrirtækin Valitor og Kortaþjónustan segjast ekki ætla að ganga jafn langt og Borgun hefur gert þegar kemur að svokallaðri veltutryggingu. 5. ágúst 2020 08:03
Gagnrýnir nýja skilmála Borgunar harðlega Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir greiðslumiðlunarfyrirtæki ekki í rétti til að halda eftir greiðslum fyrir veitta þjónustu. 4. ágúst 2020 06:33