Sýnishorn úr barna- og fjölskyldumyndinni Birta Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. október 2021 11:04 Kvikmyndin Birta verður frumsýnd 5. nóvember. Skjáskot Kvikmyndin Birta eftir Braga Þór Hinriksson er fyrsta leikna barna-og fjölskyldumyndin sem verður frumsýnd hér á landi frá því Víti í Vestmannaeyjum var sýnd árið 2018 við miklar vinsældir, einnig í leikstjórn Braga Þórs. „
Birta er bráðfyndin og hjartfólgin saga um íslenskan raunveruleika sem margir þekkja og tengja við,“ segir í tilkynningu um myndina. Sagan gerist í neðra Breiðholti og fjallar um Birtu Bjarkadóttur 11 ára, sem heyrir fyrir slysni, einstæða móður sína sem vinnur myrkrana á milli sem hjúkrunarfræðingur til að ná endum saman segja við vinkonu í símann að hún hafi ekki efni á að halda jól. Hún þurfi að minnsta kosti hundrað þúsund krónur til að geta haldið mannsæmandi jólahátíð fyrir stelpurnar sínar. Birta tekur þessum fréttum bókstaflega og ákveður að reyna bjarga jólunum fyrir mömmu og litlu systur sína Kötu sem er sex ára. Birta reynir margar leiðir til að hjálpa mömmu sinni án hennar vitneskju að afla fjár en kemst fljótt að því að það er alls ekkert einfalt mál að vinna sér inn pening, hvað þá þegar maður er ellefu ára. Með aðahlutverk í myndinni fara Kristín Erla Pétursdóttir í hlutverki Birtu, Salka Sól Eyfeld í hlutverki móður Birtu og Margrét Júlía Reynisdóttir í hlutverki systur Birtu.Aðsent Saga og handrit myndarinnar er eftir Helgu Arnardóttur og var hún framleidd af fyrirtækinu H.M.S. Productions í samstarfi við Símann, Senu og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Með aðahlutverk fara Kristín Erla Pétursdóttir í hlutverki Birtu, Salka Sól Eyfeld í hlutverki móður Birtu og Margrét Júlía Reynisdóttir í hlutverki systur Birtu. Auk þess fara stórleikarar með önnur aukahlutverk í myndinni á borð við Margréti Ákadóttur, Harald G. Haralds, hr. Hnetusmjör Helgu Brögu Jónsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson, Bjarna Snæbjörnsson, Elmu Lísu Gunnarsdóttir, Álfrúnu Örnólfsdóttur, Kristin Óla Haraldsson eða Króla, Hannes Óla Ágústsson, Sigurð Karlsson og fleiri. Þótt Birta hafi ekki enn verið frumsýnd á Íslandi hefur hún notið mikillar velgengni nú þegar og var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni Giffoni við góðar viðtökur á Ítalíu í júlí síðastliðinn. Myndin hefur verið valin inn á þrettán kvikmyndahátíðir, sem margar hverjar eru þær virtustu. Birta hefur einnig verið seld til STUDIO HAMBURG til dreifingar og sölu um allan heim. Sýningar hefjast í kvikmyndahúsum Senu þann 5. nóvember og verður lokamynd Barnamyndakvikmyndahátíðarinnar í Bíó Paradís í byrjun nóvember. Stutt sýnishorn úr myndinni má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Sýnishorn úr kvikmyndinni Birta
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða Lífið Lagið Yfirgefinn varð til þegar Valdimar öskraði á hljómsveitarmeðlimi Lífið Vaknaði í angist alla morgna Lífið Öskur á tónleikum Laufeyjar öfugt ofan í aðdáendur Lífið „Óraunverulegustu fréttir sem við getum fært“ Lífið Stjörnulífið: „Þá er maður bara að sigla inní 17. mánuðinn á þessari meðgöngu“ Lífið Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Tíska og hönnun Edda Hermanns og Rikki Daða kaupa glæsihöll á Seltjarnarnesi Lífið Stendur þétt við bak Heru Lífið „Ætla að verða 130 ára þannig að það er nægur tími til stefnu“ Lífið Fleiri fréttir Hámhorfið: Hvað eru grafískir hönnuðir að horfa á? Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Hámhorfið: Hvað eru prestar landsins að horfa á? Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 „Hann er með svona Connery áru yfir sér“ Spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion í framleiðslu í sumar Báðar fylkingar House of the Dragon fá sína stiklu Bað hennar við sólsetrið á 100 mánaða afmælinu Nýir Star Wars þættir líta dagsins ljós Sagður vera næsti James Bond Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara nítján sinnum á Dune 2 í bíó Hámhorfið: Hvað eru listakonur landsins að horfa á? Heimaleikurinn með enn önnur verðlaunin í Glasgow Spáir í spilin: „Alveg eins hægt að afhenda Nolan styttuna nú þegar“ Hryllingsmyndin um Bangsímon valin sú versta á Razzie-verðlaununum Hámhorfið: Hvað er kvikmyndagerðafólkið að horfa á? Sjá meira