Halla Hrund skipuð orkumálastjóri til næstu fimm ára Eiður Þór Árnason skrifar 19. apríl 2021 17:09 Halla Hrund Logadóttir tekur við þann 19. júní. Aðsend Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað Höllu Hrund Logadóttur í embætti orkumálastjóra til næstu fimm ára.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins en Halla tekur við þann 19. júní næstkomandi. Alls bárust fimmtán umsóknir um embættið en tvær voru dregnar til baka. Mat hæfnisnefnd fimm umsækjendur hæfasta til þess að gegna embættinu. Að sögn iðnaðarráðuneytisins boðaði Þórdís í framhaldi viðkomandi fimm umsækjendur til viðtals og var það mat ráðherra að Halla Hrund væri hæfust umsækjenda. Halla Hrund er með BA gráðu í stjórnmálafræði, meistaragráðu í alþjóðasamvinnu með áherslu á hagfræði og orkumál og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard Háskóla með áherslu á umhverfis- og orkumál. Halla Hrund hefur starfað frá árinu 2017 sem meðstofnandi og framkvæmdastjóri við miðstöð norðurslóða, Arctic Initiative, við Harvard háskóla sem beinir sjónum m.a. að áhrifum loftslagsmála, og kennir jafnframt á meistarastigi við sömu stofnun, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins. Frá árinu 2019 hefur hún meðstýrt kortlagningu breytingaþátta Norðurslóða, meðal annars orkumála, á vettvangi World Economic Forum. Halla Hrund hefur frá árinu 2015 starfað sem stofnandi og formaður Arctic Innovation Lab og starfað sem leiðbeinandi í ýmsum orkutengdum nýsköpunarhröðlum. Halla hefur setið í stjórn Orkusjóðs frá árinu 2015. Sama ár hóf hún störf sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík þar sem hún kennir námskeið um stefnumótun á sviði orkumála með áherslu á loftslagsmál. Halla Hrund var framkvæmdastjóri Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2013 fram til ársins 2016. Árin 2011 til 2013 var Halla Hrund forstöðumaður Alþjóðaþróunar við Háskólann í Reykjavík.
Orkumál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira