Útflutingur fiskiafurða til Bandaríkjanna í hættu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 25. október 2020 17:59 Sjávarútvegur er nú sem fyrr, undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar.
Mæti Ísland ekki kröfum Bandaríkjanna fyrir þann 1. mars næstkomandi lokast á útflutning flestra íslenskra fiskiafurða til Bandaríkjanna í byrjun árs 2022. Þetta kemur fram í frétt Fiskifrétta þar sem haft er eftir Þorláki Halldórssyni, formanni Landssambands smábátaeigenda á aðalfundi sambandsins sem fram fór í síðustu viku. Forsaga málsins er sú að snemma á áttunda áratugnum voru sett lög í Bandaríkjunum til verndar sjávarspendýrum. Í lögunum felst bann við því að stunda fiskveiðar sem stofnað geta sjávarspendýrum í hættu. Árið 2016 var innflutningsákvæði bætt við í lögin sem setur öðrum ríkjum það skilyrði að þau setji sér sambærilegar reglur og Bandaríkin gera. Veiðist sjávarspendýr sem meðafli í veiðarfæri hjá öðrum þjóðum í nokkru magni eiga þær á hættu á að missa leyfi til að flytja sjávarafurðir til Bandaríkjanna. Engar undanþágur í boði „Að öllu óbreyttu þá mun lokast á útflutning flestra íslenskra fiskiafurða til Bandaríkjanna 1. Janúar 2022. Það er mjög alvarlegt mál,“ sagði Þorlákur. Að sögn Þorláks verði ekki unnt að skila inn gögnum eftir þann 1. mars næstkomandi þar sem ekki sé hægt að fá úrskurðinum hnekkt enda engar undanþágur í boði. „Næsti gluggi opnast ekki fyrir okkur fyrr en eftir fjögur ár. Þannig að ef það verður lokað á okkur þá verður lokað á okkur í þessu fjögur ár,“ segir Þorlákur í samtali við Fiskifréttir. Málið sagt óleysanlegt Hann segir að fulltrúar Landssambands smábáteigenda hafi sótt marga fundi með ráðuneytinu en niðurstaðan sé alltaf sú að málið sé óleysanlegt. Þá hafi heyrst raddir þess efnis að banna eigi grásleppuveiðar á Íslandi til þess að bjarga þessum hagsmunum. „Landssamband smábátaeigenda og stjórnarmenn þess eru alfarið á móti þeim vinnubrögðum að við skulum fórna heilum veiðibúskap okkar félagsmanna fyrir þessa hagsmuni,“ sagði Þorlákur. Við grásleppuveiðar. Ekki komið til umræðu að banna grásleppuveiðar Í skriflegu svari frá Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins staðfestir hún að síðasti skiladagur á upplýsingum um meðafla og aðgerðir stjórnvalda til að lágmarka hann og uppfylla viðeigandi kröfur um vernd sjávarspendýra, veiðar og fiskeldi sé 28. febrúar 2021. „Í ársbyrjun 2022 taka reglurnar gildi, þ.e. frá og með þeim degi munu sjávarafurðir úr veiðum eða eldi sem ekki dæmast hafa sömu eða sambærilega vernd sjávarspendýra og Bandaríski iðnaðurinn, ekki fá innflutningsleyfi til Bandaríkjanna,“ segir Ásta Sigrún í samtali við Fiskifréttir. Samráðshópur vinnur að mótun viðbragða við aðgerðum Bandaríkjanna. Hópnum er ætlað að vera til ráðgjafar um samskipti íslenskra stjórnvalda við Bandaríkin vegna málsins. Ásta segir að ekki hafi komið til umræðu að banna grásleppuveiðar. Ísland er ekki eina landið sem glímir við kröfur Bandaríkjamanna. Noregur, Færeyjar, Grænland og Kanada stunda einnig grásleppuveiðar og þeim fylgir meðafli sem getur komið sér illa hvað varðar útflutning til Bandaríkjanna.
Sjávarútvegur Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Fleiri fréttir Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sjá meira