Skoraði rangstöðuþrennu gegn Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. október 2020 14:43 Álvaro Morata skorar eitt þriggja rangstöðumarka sinna gegn Barcelona. getty/Daniele Badolato
Óheppnin elti Álvaro Morata, framherja Juventus, á röndum í leiknum gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í gær. Þrisvar sinnum kom hann boltanum í mark Börsunga en var dæmdur rangstæður í öll þrjú skiptin. Barcelona vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu og er með fullt hús stiga á toppi G-riðils Meistaradeildarinnar. Juventus er með þrjú stig í 2. sæti riðilsins. Ousmane Dembélé kom Barcelona yfir á 14. mínútu. Skömmu síðar hélt Morata að hann hefði jafnað en var dæmdur rangstæður. Spánverjinn kom boltanum aftur í netið eftir hálftíma en aftur fór flagg aðstoðardómarans á loft. Á 55. mínútu skoraði Morata í þriðja sinn en enn og aftur var hann dæmdur rangstæður, nú með hjálp myndbandsdómgæslu. Öll rangstöðumörk Moratas má sjá hér fyrir neðan. Juan Cuadrado átti síðustu sendinguna á Morata í öllum rangstöðumörkunum. Klippa: Rangstöðumörk Morata Lionel Messi gulltryggði sigur Barcelona með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Lokatölur 0-2, Börsungum í vil. Um helgina var einnig dæmt mark af Morata þegar Juventus gerði 1-1 jafntefli við Verona í ítölsku úrvalsdeildinni. Um þarsíðustu helgi gerði Juventus 1-1 jafntefli við nýliða Crotone. Morata skoraði mark Juventus og annað til sem var dæmt af. Þá skoraði Morata bæði mörk Juventus í 0-2 sigri á Dynamo Kiev í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku. Hann hefur alls skorað þrjú mörk á tímabilinu en þau hefðu getað verið mun fleiri.
Meistaradeild Evrópu Ítalski boltinn Tengdar fréttir Ronaldo mjög pirraður að vera enn frá Cristiano Ronaldo er ekki í leikmannahóp Juventus í leik þeirra gegn Barcelona í kvöld þar sem hann er með kórónuveiruna. Samkvæmt Ronaldosjálfum er hann samt við hestaheilsu. 28. október 2020 21:32 Barcelona lagði Juventus | Pirlo í vandræðum? Börsungar sóttu sigur til Ítalíu er þeir lögðu Juventus í Meistaradeild Evrópu í kvöld, lokatölur 2-0 gestunum í vil. 28. október 2020 22:05 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Skúrkurinn endaði sem hetjan Íslenski boltinn Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjá meira
Ronaldo mjög pirraður að vera enn frá Cristiano Ronaldo er ekki í leikmannahóp Juventus í leik þeirra gegn Barcelona í kvöld þar sem hann er með kórónuveiruna. Samkvæmt Ronaldosjálfum er hann samt við hestaheilsu. 28. október 2020 21:32
Barcelona lagði Juventus | Pirlo í vandræðum? Börsungar sóttu sigur til Ítalíu er þeir lögðu Juventus í Meistaradeild Evrópu í kvöld, lokatölur 2-0 gestunum í vil. 28. október 2020 22:05