Íslandsmeistari í járningum kemur frá Belgíu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 24. október 2021 20:16 Geert Cornelis Íslandsmeistari í járningum 2021 með verðlaunin sín, ásamt þeim Gunnari Halldórssyni og Halldóri Kristni Guðjónssyni, sem höfnuðu í öðru og þriðja sæti. Marteinn Magnússon Nýr Íslandsmeistari í járningum var krýndur um helgina en átta keppendur tóku þátt í Íslandsmótinu með því að járna nokkur hross frá Eldhestum í Ölfusi.“Gott skap og sterkur líkami þarf að einkenna góðan járningamann“, segir yfirdómari mótsins.
Það var Járningamannafélag Íslands, sem stóð að Íslandsmótinu, sem fór fram í gær hjá Eldhestum. Keppendurnir átta komu víða að landinu, allt karlmenn og vanir járningamenn. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga við járningu hesta og hófhirðu þeirra. Sigurður Sæmundsson á Skeiðvöllum í Holtum hefur járnað mörg þúsund hesta í gegnum árin enda einn af færustu járningamönnum Íslands. „Fyrir þann sem skilur járninguna og kann hana þá er þetta ekkert flókið verk, það er bara mjög auðvelt. En til þess þurfa menn að vita hvað þeir eru að gera, þetta er bara eins og með læknirinn og bílvirkjana,“ segir Sigurður. En hvað þarf að einkenna góðan járningamann? „Gott skap og sterkur líkami. Það þarf alltaf að vera jákvæður hrossunum og láta sér ekki renna í skap mikið og vita hvað þú ert að gera. Svo verður þú náttúrulega að hafa heppilegan skrokk fyrir járninguna því að þú sérð það seinna að þetta er rosalega þung vinna.“ Sigurður Sæmundsson á Skeiðvöllum í Holtum í Rangárþingi ytra var yfirdómari á Íslandsmótinu en hann hefur járnað mörg þúsund hesta í gegnum árin enda einn af færustu járningamönnum Íslands.Magnús Hlynur Hreiðarsson Keppnin var hörð og spennandi og gekk Sigurður á milli keppenda og tók út verk þeirra, ásamt Sturlu Þórhallssonar meðdómara, enda var til mikils að vinna að fá þennan risa farandbikar. Það fór svo að lokum að Geert Cornelis, sem er frá Belgíu en hefur járnað á Íslandi til fjölda ára var krýndur Íslandsmeistari í járningum fyrir árið 2021. Í öðru sæti varð Gunnar Halldórsson og Halldór Kristinn Guðjónsson varð í þriðja sæti. Geert segir að þrátt fyrir að járningar geti verið erfiðar og tekið á þá séu þær mjög skemmtilegar og gaman að vinna sem járningamaður. „Allt hefur sína kosti og galla,“ segir hann alsæll með Íslandsmeistaratitilinn. Geert Cornelis, sem er frá Belgíu hefur járnað á Íslandi til fjölda ára og líkar starfið vel.Magnús Hlynur Hreiðarsson Engin kona tók þátt í Íslandsmeistaramótinu í ár en vonast er til að einhverjar þeirra skrái sig til keppninnar á næsta ári því það færist mjög í vöxt að konur starfi við járningar á Íslandi líkt og karlarnir. Járningamannafélag Íslands stóð að Íslandsmeistaramótinu í járningum.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Ölfus Hestar Landbúnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira