Skipuleggjendur bregðast við hertum aðgerðum með ólíkum hætti Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. júlí 2021 21:59 Borgarfjörður eystri þar sem Bræðslan fer nú fram. Skipuleggjendur hátíða og annarrar dagskrár sem átti að vera nú um helgina eða á næstunni hafa brugðist við hertum samkomutakmörkunum á mismunandi hátt.
Þannig hefur aðaltónleikunum á Bræðslunni á Borgarfirði eystri á morgun verið flýtt um klukkutíma, væntanlega svo að þeir rúmist innan tvö hundruð manna samkomutakmarkana sem taka gildi á miðnætti annað kvöld. Þá mun FM Belfast ekki vera með DJ-set í Fjarðarborg eftir Bræðsluna eins og til stóð en DJ-partýið hefur verið fært fram um einn sólarhing, og fer það því fram í kvöld. Vekja aðstandendur Bræðslunnar einnig athygli á því að tjaldsvæðið á Borgarfirði eystri muni ekki taka við fleiri gestum vegna yfirvofandi samkomutakmarkana. Steinþór Helgi Arnsteinsson, sumarvagnstjóri á Vagninum á Flateyri hvetur einnig alla til þess að nýta tækifærið og skella sér vestur á „síðasta djammið“ eins og hann orðar það, framundan sé rave á Vagninum. SÍÐASTA DJAMMIÐ! GÖNNIÐ Á FLATEYRI. RAVE Í NÓTT! pic.twitter.com/NdSIelZ1tC— Steinþór Helgi (@StationHelgi) July 23, 2021 Eins og fram hefur komið skoða Vestmannaeyingar nú hvort mögulegt sé að seinka Þjóðhátíð um nokkrar vikur. Hún átti að fara fram um Verslunarmannahelgina en formaður Þjóðhátíðarnefndar segir að erfitt verði að halda hátíðina þá vegna þeirra samkomutakmarkana sem taka gildi. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjar, tekur undir þessar vangaveltur á Facebook í stöðuuppfærslu undir yfirskriftinni „Döpur, svekkt og pirruð!“ Þar spyr hún hvort ekki sé borðleggjandi að fresta Þjóðhátið í stað þess að slá hana af, enda gilda samkomutakmarkanir sem nú eru að taka gildi til 13. ágúst. Skipuleggjendur Einnar með öllu á Akureyri hafa hins vegar tekið þá ákvörðun að aflýsa hátíðinni annað árið í röð, segja Akureyringar að ekki sé ráðlagt að stefna þúsundum manna saman miðað við uppgang Covid-19 á undanförnum dögum. Skipuleggjendur Druslugöngunnar taka í svipaðan streng en hún átti að fara fram á morgun klukkan tvö. Engar takmarkanir gilda því um hana en skipuleggjendur segja í uppfærslu á Facebook að þeir hafi tekið þá ákvörðun að fresta hátíðinni um óákveðinn tíma. „Þrátt fyrir að takmarkanirnar taki ekki gildi fyrr en annað kvöld finnst okkur mikilvægt að fylgja fyrirmælum stjórnvalda og sýna þá samfélagslegu ábyrgð að gera það sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir áframhaldandi útbreiðslu smita.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Bræðslan Þjóðhátíð í Eyjum Druslugangan Tengdar fréttir Einni með öllu á Akureyri aflýst Fjölskylduhátíðinni Einni með öllu sem halda átti á Akureyri um verslunarmannahelgina hefur verið aflýst eftir að tilkynnt var um að sett yrði á tvö hundruð manna samkomubann. 23. júlí 2021 20:15 Bjarni: Þetta er varúðarráðstöfun Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þær sóttvanraraðgerðir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld séu varúðarráðstafanir. Hann blæs á það að einhver óánægja sé innan raða Sjálfstæðismanna með hertar aðgerðir innanlands. 23. júlí 2021 20:02 Kanna hvort hægt verði að halda þjóðhátíð eftir nokkrar vikur Formaður þjóðhátíðarnefndar segir að kannaður verði möguleikinn á því að fresta þjóðhátíð um nokkrar vikur. Erfitt verði að halda hátíðina um verslunarmannahelgina innan þeirra samkomutakmarkana sem taka eiga gildi á morgun. 23. júlí 2021 19:31 Tvö hundruð mega koma saman og eins metra fjarlægðarregla Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti annað kvöld. 200 manns mega koma saman og eins metra fjarlægðarmörk verða í gildi. Hertar aðgerðir gilda til 13. ágúst. 23. júlí 2021 19:05 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira
Einni með öllu á Akureyri aflýst Fjölskylduhátíðinni Einni með öllu sem halda átti á Akureyri um verslunarmannahelgina hefur verið aflýst eftir að tilkynnt var um að sett yrði á tvö hundruð manna samkomubann. 23. júlí 2021 20:15
Bjarni: Þetta er varúðarráðstöfun Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þær sóttvanraraðgerðir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld séu varúðarráðstafanir. Hann blæs á það að einhver óánægja sé innan raða Sjálfstæðismanna með hertar aðgerðir innanlands. 23. júlí 2021 20:02
Kanna hvort hægt verði að halda þjóðhátíð eftir nokkrar vikur Formaður þjóðhátíðarnefndar segir að kannaður verði möguleikinn á því að fresta þjóðhátíð um nokkrar vikur. Erfitt verði að halda hátíðina um verslunarmannahelgina innan þeirra samkomutakmarkana sem taka eiga gildi á morgun. 23. júlí 2021 19:31
Tvö hundruð mega koma saman og eins metra fjarlægðarregla Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti annað kvöld. 200 manns mega koma saman og eins metra fjarlægðarmörk verða í gildi. Hertar aðgerðir gilda til 13. ágúst. 23. júlí 2021 19:05