Þurfti að stöðva sýningu vegna drykkjuláta í annað sinn á ferlinum Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. desember 2021 20:00 Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikhússtjóri Gaflaraleikhússins. Vísir/Vilhelm Leikhússtjóri Gaflaraleikhússins segist finna fyrir aukinni áfengisneyslu og ólátum meðal áhorfenda, sem mögulega geti skrifast á stuttan opnunartíma skemmtistaða. Hún þurfti á dögunum að stöðva sýningu vegna þessa, í annað sinn á ferlinum. Hún fagnar þó hvers kyns samtali við áhorfendur og bendir á að sýningin bjóði upp á meiri þátttöku þeirra en gengur og gerist.
En fyrst víkur sögunni að Borgarleikhúsinu. Á laugardagskvöld var þar áhorfandi til ófriðs á Bubbasöngleiknum 9 lífum, sem lyktaði með því að Halldóra Geirharðsdóttir, einn aðalleikara sýningarinnar, skarst í leikinn - og það hafði tilætluð áhrif. Það ríkti friður í salnum, og raunar ekki bara friður heldur tók við dynjandi lófatak annarra áhorfenda, sem voru ánægðir með framtak Halldóru. Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að því miður komi það fyrir að meðal gesta slæðist inn einn og einn sem búinn sé að fá sér aðeins of mikið. Drukknir einstaklingar geti verið til trafala og brugðist sé við því af bestu getu. Leikhúsið hafi þó ekki fundið fyrir aukningu á ölvun meðal gesta. Algjör hvítvínssýning Það hefur Björk Jakobsdóttir, leikhússtjóri Gaflaraleikhússins og ein leikkvenna í sýningunni Bíddu bara, þó gert. Fólk sé orðið verulega samkomuþyrst. „Það er sko verið að taka fyrirpartíið og fordrykkinn og leiksýninguna og eftirpartíið og allt á þessum þremur tímum sem þú hefur áður en það er skellt í lás. Þannig að við höfum fundið fyrir því að það hefur verið, hvað á ég að segja, virk þátttaka,“ segir Björk og hlær. „En við höfum svolítið verið að tala um þetta kollegarnir, að þetta er víða.“ Þetta eigi við sýninguna Bíddu bara, sem vissulega bjóði upp á meiri þátttöku áhorfenda en gengur og gerist. „Þannig að þetta er algjör hvítvínssýning. En kannski bara, ekki drekka heila belju!“ segir Björk. Hún fer þar með eitt þriggja aðalhlutverka ásamt Selmu Björnsdóttur og Sölku Sól Eyfeld en sú síðastnefnda hefur nú horfið frá vegna barneignarleyfis. Þuríður Blær Jóhannsdóttir hefur tekið við hlutverki Sölku. Komnar í samkeppni við partíið á sviðinu Þá þurfti Björk hreinlega að stöðva sýningu á verkinu á dögunum vegna hóps kvenna sem hafði sig fullmikið í frammi. „Þá sátu þær á fremsta bekk og partíið var bara komið í svo mikla samkeppni við það sem við vorum að gera á sviðinu þannig að það var eiginlega ekki vinnufært. Og svo kemur að því að maður þarf að hugsa um hina 200, sem voru kannski ekki alveg á sama stað.“
Leikhús Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Sofa rótt í Grindavík og halda í vonina Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira