Erik ten Hag, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester United, hefur ekki áhyggjur af starfi sínu.
Manchester United hefur ekki fagnað góðum árangri á yfirstandandi tímabili en liðið er í áttunda sæti deildarinnar. Þó er liðið komið í úrslitaleik bikarsins.
Manchester United fær topplið Arsenal í heimsókn á sunnudaginn kemur en á blaðamannafundi fyrir leikinn sagði ten Hag:
„Yfirmenn félagsins búa yfir almennri skynsemi,“ sagði ten Hag einfaldlega.