Breskir heilbrigðisstarfsmenn óttast að verða sóttir til saka Sylvía Hall skrifar 16. janúar 2021 16:13 Mikið álag hefur verið á heilbrigðisstofnunum í Bretlandi og óttast sérfræðingar að það komi til með að aukast á næstu vikum. Getty/David Cliff Breskir heilbrigðisstarfsmenn hafa kallað eftir því að þeim verði veitt lagaleg vernd gegn mögulegum afleiðingum álagsins sem fylgir kórónuveirufaraldrinum. Þeir séu settir í þá stöðu að taka ákvarðanir sem gætu valdið dauðsföllum.
Álagið á heilbrigðiskerfið þar í landi hefur aukist undanfarnar vikur þar sem smitum fer enn fjölgandi. Nýtt afbrigði kórónuveirunnar, sem er talið mun meira smitandi en önnur afbrigði, hefur bætt gráu ofan á svart og hefur metfjöldi smita greinst undanfarnar vikur. Dauðsföll af völdum kórónuveirunnar í Bretlandi nálgast nú níutíu þúsund frá því að faraldurinn hófst. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins óttast starfsfólk að geta ekki sinnt öllum þeim sem sækjast eftir læknisaðstoð á næstu vikum. Þannig gæti þurft að vísa einhverjum frá sem nauðsynlega þurfa að komast undir læknishendur. Boris hafi sjálfur talað um siðferðilegt stórslys Samtök heilbrigðisstarfsfólks hafa skrifað til ráðherra og bent þeim á að heilbrigðisstarfsmenn séu í hættu á að verða ákærðir fyrir að valda dauðsföllum með ólögmætum hætti. Í bréfinu er jafnframt tekið fram að Boris Johnson forsætisráðherra hafi sjálfur sagt að of mikið álag á heilbrigðisstofnanir yrði „læknisfræðilegt og siðferðilegt stórslys“ þar sem starfsfólk yrði sett í þá stöðu að velja hverjir myndu lifa og hverjir myndu deyja. „Yfirmenn á heilbrigðisstofnunum telja nú mikla hættu á því að heilbrigðiskerfið geti ekki staðið undir álaginu á næstu vikum. Meðlimir okkar óttast ekki aðeins að vera settir í þá stöðu, heldur einnig að þeir geti átt í hættu að lenda í sakamálarannsókn af hálfu lögreglunnar,“ segir í bréfinu til ráðherranna. Kallað er eftir lagasetningu sem myndi vernda lækna og hjúkrunarfræðinga fyrir slíkum ákærum í ljósi þess að þeir gætu nú verið settir í aðstæður sem þeir hafa enga stjórn á. Þær leiðbeiningar sem nú séu í gildi veiti ekki nægilega vernd. „Það að veita sjúklingum bestu mögulegu meðferð er ávallt í forgangi hjá öllum læknum. Við teljum það ekki rétt að heilbrigðissérfræðingar þurfi mögulega að glíma við þær siðferðilegu og andlegu afleiðingar sem fylgja því að taka ákvarðanir út frá því hvernig takmörkuðum gæðum er dreift, á sama tíma og þeir geti átt í hættu á að verða ákærðir.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Tengdar fréttir Breska afbrigðið verði orðið ráðandi í mars Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, varar nú við því að afbrigði kórónuveirunnar sem talið er meira smitandi en flest önnur, og var fyrst uppgötvað í Bretlandi, verði orðið ráðandi afbrigði veirunnar í Bandaríkjunum fyrir marsmánuð. 16. janúar 2021 08:17 Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa. 11. janúar 2021 18:47 Setja aukinn kraft í bólusetningar Bretar ætla að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi í vikunni og í dag opna sjö bólusetningamiðstöðvar víðs vegar um landið sem geta tekið á móti miklum fjölda fólks. 11. janúar 2021 08:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Sigurþór ráðinn framkvæmdastjóri SVFR Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira
Breska afbrigðið verði orðið ráðandi í mars Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, varar nú við því að afbrigði kórónuveirunnar sem talið er meira smitandi en flest önnur, og var fyrst uppgötvað í Bretlandi, verði orðið ráðandi afbrigði veirunnar í Bandaríkjunum fyrir marsmánuð. 16. janúar 2021 08:17
Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa. 11. janúar 2021 18:47
Setja aukinn kraft í bólusetningar Bretar ætla að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi í vikunni og í dag opna sjö bólusetningamiðstöðvar víðs vegar um landið sem geta tekið á móti miklum fjölda fólks. 11. janúar 2021 08:15