Fagnaði sigri með FIFA fögnuði

Daniil Medvedev gerir fögnuðinn fræga úr FIFA leikjunum.
Daniil Medvedev gerir fögnuðinn fræga úr FIFA leikjunum. AFP

Flestir sem spila FIFA tölvuleikina er kunnugt um mismunandi leiðir til að fagna mörkum í leiknum. Hægt er að velja milli mismunandi leiða til að fagna í leiknum, og hafa afreksíþróttamenn í öðrum íþróttum notað sömu leiðir til að fagna í sínum íþróttum.

L2 + vinstri

Tennisleikmaðurinn Daniil Medvedev notaðist við eina þessara leiða til að fagna sigri sínum í úrslitaleik tennismótsins US Open. Hann fagnaði með því að gera „dead fish“ fögnuðinn sem þekkt er í tölvleiknum FIFA. 

Í viðtali eftir sigurinn sagði hann „Aðeins goðsagnir munu skilja, L2 + vinstri.“ Þar vísar hann til þeirra leiða sem notast er við til að framkvæma „dead fish“ fögnuðinn í leiknum FIFA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert