Harma ofbeldið á Hjalteyri

Barnaheimilið á Hjalteyri var rekið í Rich­ards­húsi á ár­un­um 1972 …
Barnaheimilið á Hjalteyri var rekið í Rich­ards­húsi á ár­un­um 1972 til 1979. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Sveitarstjórn Hörgársveitar harmar þær lýsingar sem fram hafa komið í fjölmiðlum undanfarna daga af illri meðferð og kyn­ferðisof­beldi á barna­heim­ilinu á Hjalteyri sem rekið var á árunum 1972 til 1979.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

„Sveitarstjórnin tekur undir að fram þarf að fara opinber rannsókn á þessu heimili að frumkvæði ríkisins í samræmi við aðrar sambærilegar rannsóknir á öðrum heimilum þar sem börn voru vistuð. 

Sveitarstjórnin mun leggja slíkri rannsókn lið eins og hægt er, fari hún fram,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert