Hefja söfnun fyrir konuna sem missti hunda sína sex í eldsvoða Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. október 2020 15:30 Fjórir af hundunum sex sem brunnu inni í gær sjást hér á mynd.
Hrundið hefur verið af stað söfnun fyrir konu sem missti sex hunda sína í eldsvoða í Kópavogi í gær. Skipuleggjendur söfnunarinnar segja tjón konunnar mikið, bæði tilfinninga- og efnislegt. Konan, Erna Óladóttir Christiansen, ræktar hunda af tegundinni Russian toy og heldur úti ræktun undir merkjum Great Icelandic Toy. Margir hundar voru því á heimilinu þegar eldurinn kviknaði í gær, alls tíu, en þar af brunnu sex inni. Hundarnir hétu Echo, Abby, Mona, Oriana, Ohana og Moli. „Í brunanum sem var í Kópavogi í gær missti ung kona heimili sitt og 6 af hundabörnunum hennar dóu af völdum brunans. Það tókst að bjarga 4 hundum. Þessi unga, duglega og yndislega kona missti því bæði heimili sitt og hluta af börnunum sínum í þessum hræðilega atburði,“ segir í færslu Sögu Matthildar Árnadóttur, vinkonu Ernu, inni á Facebook-hópnum Hundasamfélaginu í dag. Hinir hundarnir tveir sem týndu lífi í brunanum. Saga er ein þeirra sem heldur utan um söfnunina en um er að ræða sameiginlegt átak þeirra sem eiga hunda úr ræktun Ernu. Söfnuninni er ætlað að safna fé til þess að aðstoða Ernu, fjölskyldu hennar og eftirlifandi hundana fjóra, sem allir þurftu á aðhlynningu dýralækna að halda eftir brunann í gær. „Þetta eru algjörlega frjáls framlög og allt fer beint til Ernu til þess að gera henni kleift að kaupa það sem vantar og komast aftur á fæturna eftir þetta stóra áfall,“ segir Saga í færslunni. Erna hefur sjálf lýst því á samfélagsmiðlum eftir brunann í dag að áfallið sé gríðarlegt. Hundarnir sem komust lífs af eigi langt bataferli fyrir höndum. Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á eftirfarandi reikning: Kennitala: 240797-2089 Reikningsnúmer: 0130-26-3831 Eldurinn í húsi Ernu er talinn hafa kviknað út frá lampa, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þá hefur komið fram að húsið er talsvert skemmt eftir brunann. Reikningsupplýsingar í fréttinni hafa verið uppfærðar.
Dýr Slökkvilið Kópavogur Tengdar fréttir Hundarnir sem björguðust úr brunanum braggast vel Hundarnir sem björguðust úr bruna í íbúðarhúsi við Akrakór í Kópavogi í gær braggast vel, að því er fram kemur í færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á Facebook í dag. 28. október 2020 13:38 Talið að eldurinn hafi kviknað út frá lampa Talið er að eldur sem kviknaði í íbúðarhúsi við Akrakór í Kópavogi síðdegis í gær hafi kviknað út frá lampa. 28. október 2020 13:11 Sex hundar brunnu inni í Kópavogi Fjórum hundum var hins vegar bjargað úr brunanum, líkt og greint var frá í gær, og þeir fluttir til skoðunar hjá dýralækni. 28. október 2020 10:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Fleiri fréttir Hyggst skipa sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Pallborð í dag og niðurstöður nýrrar könnunar Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Sjá meira
Hundarnir sem björguðust úr brunanum braggast vel Hundarnir sem björguðust úr bruna í íbúðarhúsi við Akrakór í Kópavogi í gær braggast vel, að því er fram kemur í færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á Facebook í dag. 28. október 2020 13:38
Talið að eldurinn hafi kviknað út frá lampa Talið er að eldur sem kviknaði í íbúðarhúsi við Akrakór í Kópavogi síðdegis í gær hafi kviknað út frá lampa. 28. október 2020 13:11
Sex hundar brunnu inni í Kópavogi Fjórum hundum var hins vegar bjargað úr brunanum, líkt og greint var frá í gær, og þeir fluttir til skoðunar hjá dýralækni. 28. október 2020 10:29