Ekki borið að með saknæmum hætti

Mikill viðbúnaður var við Eiðsgranda í gær.
Mikill viðbúnaður var við Eiðsgranda í gær. mbl.is

Kona fannst látin í fjörunni norðan Eiðsgranda í Reykjavík eftir hádegi í gær.

Andlátið er ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mikill viðbúnaður var á svæðinu í gær eftir að líkið fannst.

Lögregla gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert