Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti á Seltjarnarnesi Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2022 22:19 Þór Sigurgeirsson gefur kost á sér í fyrsta sæti. Aðsend Þór Sigurgeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Þór kveðst hafa reynslu af bæjarmálum Seltjarnarness en hann var bæjarfulltrúi á árunum 2006 til 2010. Þá hafi hann setið í nefndum á vegum bæjarins. „Eitthvað sem mig hefur lengi langað til að gera og eftir mikla hvatningu frá fjölda vina og kunningja í gegnum tíðina, af meiri þunga nú undanfarið, varð ákvörðunin á endanum einföld,“ segir Þór í framboðstilkynningu á Facebooksíðu sinni. Í samtali við Vísi segist Þór vera fjölskyldumaður, kvæntur Maríu Björk Óskarsdóttur sviðsstjóra hjá Seltjarnarnesbæ og saman eigi þau fjögur börn á aldrinum 12 til 24 ára. Fetar í fótspor föður síns Nú sé fram undan mikil endurnýjun í forystuhópi Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi og því telji hann tíma til kominn að hann stígi á svið bæjarmálanna á ný. „Akkúrat 20 árum frá því að pabbi lét af embætti eftir 40 ára farsælan feril – ákveðin rómantík í því!“ segir Þór, en faðir hans Sigurgeir Sigurðsson, var bæjarstjóri Seltjarnarness í áratugi og sat í bæjarstjórn í 40 ár. Stoltur af því að tilheyra fyrirmyndar samfélagi Þór segir Seltjarnarnes alltaf hafa verið sinn heimabæ og verði alltaf. Hann segist stoltur af því að tilheyra fyrirmyndar samfélagi og reyna ávallt að láta gott af sér leiða hvort heldur til að efla bæinn eða íþróttafélögin. „Ræturnar liggja klárlega í sportinu, ég hef alist upp með Gróttu, spilaði þar bæði handbolta og fótbolta. Stunda nú golf af kappi í Nesklúbbnum og er fastagestur í Sundlaug Seltjarness, bestu laug landsins, segir Þór í samtali við Vísi. Hann segir öll málefni bæjarfélagsins vera áherslumál. Þó að Seltjarnarnesbær sé nærri fullbyggður standi íbúar hans frammi fyrir fjölda áskorana í takt við nýja tíma. „Ég tel mig afbragðsefni í góðan fyrirliða samtaka liðs í kosningunum í maí og mun leggja mig allan fram við að auka fylgi Sjálfstæðismanna og sameina okkar sterka lið fái ég til þess umboð kjósenda í prófkjörinu,“ segir hann.
Seltjarnarnes Sveitarstjórnarkosningar 2022 Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Stefnir í æsispennandi bæjarstjóraslag á Seltjarnarnesi Fjögur eru nefnd til sögunnar og talin líkleg til að reyna fyrir sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, en sögulega tryggir oddvitasætið á lista flokksins jafnframt bæjarstjórastólinn. 9. janúar 2022 22:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Innlent Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Innlent Fleiri fréttir Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Sjá meira
Stefnir í æsispennandi bæjarstjóraslag á Seltjarnarnesi Fjögur eru nefnd til sögunnar og talin líkleg til að reyna fyrir sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, en sögulega tryggir oddvitasætið á lista flokksins jafnframt bæjarstjórastólinn. 9. janúar 2022 22:59