Giroud skoraði tvö í síðasta leik Frakka

Olivier Giroud skorar í kvöld.
Olivier Giroud skorar í kvöld. AFP

Oliver Giroud var áberandi og skoraði tvö mörk fyrir Frakkland í 3:0-sigri á Búlgaríu í vináttuleik í fótbolta á Stade de France í París í vináttuleik í kvöld. Leikurinn var sá síðasti í undirbúningi Frakka fyrir Evrópumótið sem hefst í næstu viku. 

Antoine Griezmann kom Frakklandi yfir á 29. mínútu og var staðan 1:0 í hálfleik. Olivier Giroud kom inn á sem varamaður á 41. mínútu hjá Frökkum og hann tvöfaldaði forskotið á 83. mínútu og skoraði þriðja mark liðsins á 90. mínútu. 

Frakkar eru í dauðariðli lokakeppni Evrópumótsins ásamt Þýskalandi, Ungverjalandi og Portúgal. 

Karim Benzema, framherji Real Madrid, fór meiddur af velli í leiknum og gæti hann misst af lokamótinu ef allt fer á versta veg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert