Nýskilinn, aleinn og við það að drekka sig í hel Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. apríl 2021 15:04 Hunter Biden ásamt föður sínum, Joe Biden Bandaríkjaforseta, árið 2016. Getty/Teresa Kroeger Hunter Biden, sonur Joe Biden Bandaríkjaforseta, ræddi glímu sína við áfengis- og kókaínfíkn í ítarlegu viðtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær. Þá var hann einnig spurður út í gagnrýni sem hann og faðir hans sættu vegna stjórnarsetu þess fyrrnefnda í úkríanska orkufyrirtækinu Burisma.
Repúblikanar beindu spjótum sínum einkum að Hunter Biden til að ná höggi á föður hans í aðdraganda forsetakosninganna nú í nóvember. Aðkoma Bidens yngri að stjórn áðurnefnds fyrirtækis vakti tortryggni um svipað leyti og vantrauststillaga á hendur Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, var til umfjöllunnar í fyrra. Biden hefur áður sagt að það hafi verið dómgreindarleysi af sinni hálfu að sitja í stjórn fyrirtækisins á sama tíma og faðir hans rak stefnu Bandaríkjastjórnar í Úkraínu. Hann áréttaði þessa afstöðu sína í viðtalinu við BBC, sem tekið er í aðdraganda útgáfu nýrrar sjálfsævisögu hans, en sagðist þó hafa uppfyllt þau skilyrði sem krafist var til að gegna stöðunni. Móðir Bidens, Neilia, og Naomi, ársgömul systir hans, létust í bílslysi rétt fyrir jól 1972. Biden, sem var tveggja ára þegar slysið varð, lýsti því í viðtalinu að áfallið hefði verið gríðarlegt og líklega stuðlað að fíknivandanum sem hann hefur glímt við á fullorðinsárum. Sú glíma hefur að miklu leyti verið háð fyrir opnum tjöldum en Hunter Biden hefur ítrekað ratað í fjölmiðla vegna áfengis- og eiturlyfjafíknar sinnar. „Það er eitthvað sem vantar í kjarna hvers fíkils, sem honum finnst að þurfi að bæta upp fyrir. Ekkert getur nokkurn tímann bætt upp fyrir það. Og þess vegna deyfirðu sjálfan þig,“ sagði Biden. Þá hafi andlát bróður hans Beau, sem lést úr krabbameini árið 2015, einnig verið honum skelfilega þungbært. Biden lýsti því að eftir að Beau dó hefðu hugsanir hans leitað á „myrkan stað“. „Bróðir minn var nýdáinn, ég var skilinn við konuna mína, ég var aleinn í íbúð og var í raun að drekka mig í hel. Það var hryllilegt. Ég meina, sorg framkallar skrýtna hluti. Og þegar fíkn er komin í spilið er þetta mjög erfiður hlutur að yfirstíga.“
Bandaríkin Joe Biden Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Rússar reyndu að hafa áhrif á bandamenn Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti skipaði persónulega fyrir um tilraunir rússnesku leyniþjónustunnar til þess að koma höggi á Joe Biden í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum síðasta haust. Leyniþjónustan er meðal annars sögð hafa háð leynilega herferð til þess að hafa áhrif á nána bandamenn Donalds Trump, þáverandi forseta. 17. mars 2021 09:25 Skattamál Hunters Biden til rannsóknar Saksóknari í Delaware fer nú fyrir rannsókn á skattamálum Hunters Biden, sonar Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseta. Sjálfur segist Hunter Biden líta rannsóknina „mjög alvarlegum“ augum en kveðst fullviss um að „hlutlaus úttekt“ muni leiða í ljós að hann hafi staðið skil á sköttum og gjöldum „samkvæmt lögum og með viðeigandi hætti,“ að því er fram kemur í frétt BBC nú í kvöld. 9. desember 2020 21:46 Trump krefst þess að Barr rannsaki Biden Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur kallað eftir því að hinn umdeildi dómsmálaráðherra William Barr hefji rannsókn á Joe Biden, mótframbjóðanda Trump og syni hans Hunter Biden. 20. október 2020 22:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Réðst á barn sem gerði dyraat Innlent Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Innlent Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Innlent Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Innlent Fleiri fréttir Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Frumvarp um bann við TikTok samþykkt Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Sjá meira
Rússar reyndu að hafa áhrif á bandamenn Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti skipaði persónulega fyrir um tilraunir rússnesku leyniþjónustunnar til þess að koma höggi á Joe Biden í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum síðasta haust. Leyniþjónustan er meðal annars sögð hafa háð leynilega herferð til þess að hafa áhrif á nána bandamenn Donalds Trump, þáverandi forseta. 17. mars 2021 09:25
Skattamál Hunters Biden til rannsóknar Saksóknari í Delaware fer nú fyrir rannsókn á skattamálum Hunters Biden, sonar Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseta. Sjálfur segist Hunter Biden líta rannsóknina „mjög alvarlegum“ augum en kveðst fullviss um að „hlutlaus úttekt“ muni leiða í ljós að hann hafi staðið skil á sköttum og gjöldum „samkvæmt lögum og með viðeigandi hætti,“ að því er fram kemur í frétt BBC nú í kvöld. 9. desember 2020 21:46
Trump krefst þess að Barr rannsaki Biden Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur kallað eftir því að hinn umdeildi dómsmálaráðherra William Barr hefji rannsókn á Joe Biden, mótframbjóðanda Trump og syni hans Hunter Biden. 20. október 2020 22:33