Níu hópnauðgunarmál í ár: „Það er sláandi“ Nadine Guðrún Yaghi skrifar 7. júní 2021 19:01 Hrönn Stefánsdóttir er verkefnastjóri Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. VÍSIR/ARNAR Níu hópnauðgunarmál hafa komið á borð Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis það sem af er ári, með allt að fimm gerendum. Verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar segir stöðuna sláandi.
Frá áramótum hafa sextíu og þrír leitað til Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis, tveir karlar og sextíu og ein kona. „Það hafa verið í kringum sjö til tíu mál í mánuði, nema núna í maí þá komu 24 einstaklingar til okkar,“ segir Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar. Þetta séu óvenju mörg mál í einum mánuði. Umræðan síðustu vikur geti hafa spilað inn í og einnig tilslakanir á samkomutakmörkunum. „Það er lengri opnunartími. Fólk er að koma meira saman, það er talsvert mikið um skemmtanir í miðbænum, skólarnir eru að klárast og svona. Hópurinn sem leitar mest til okkar er átján til tuttugu og fimm ára,“ segir Hrönn. Tólf börn á Neyðarmóttökuna í ár Tólf börn undir átján ára hafa leitað til Neyðarmóttökunnar í ár. „Verklagsreglurnar okkar miða við tólf ára börn en við höfum verið að taka á móti börnum niður í tíu ára,“ segir Hrönn. Sláandi tölur Hrönn segir það sláandi hve mörg hópnauðgunarmál hafi komið á borð Neyðarmóttökunnar í ár. „Það eru níu hópnauðganir núna á þessu ári. Það virðist vera aukning í þeim málum. Ef við skoðum árið 2019 þar sem voru 175 mál sem komu til okkar voru þær sjö. Núna eru komin níu mál og árið er bara hálfnað. Þannig það er sláandi,“ segir Hrönn. Allt að fimm gerendur Í málunum níu sé oftast um að ræða tvo gerendur en þrjá til fimm í sumum málanna. Konur séu þolendur í öllum málunum og karlar meintir gerendur. „Flest allir gerendur í þessum kynferðisbrotamálum eru íslenskir karlmenn,“ segir Hrönn og bætir við að brotaþolarnir séu á aldrinum 18 til 25 ára. Hún segir afleiðingar þess að lenda í hópnauðgun vera gríðarlega miklar. „Þar sem allt vald er tekið af þér, þannig þetta eru alvarleg mál og við þurfum að hlúa vel að brotaþolum og styðja við þá,“ segir Hrönn sem vill taka fram að Neyðarmóttakan sé alltaf opin, allan sólarhringinn. Þar séu engir biðlistar. Fimmtán mál kærð til lögreglu Af þeim sextíu og þremur málum sem hafa komið á borð Neyðarmóttökunnar í ár hafa fimmtán verið kærð til lögreglu og eru nú rannsökuð þar. Er eitthvað hópnauðgunarmál farið í kæruferli ? „Já,“ segir Hrönn.
Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira