O’Sullivan féll úr keppni

Ronnie O'Sullivan.
Ronnie O'Sullivan. AFP

Ronnie O’Sullivan féll í dag óvænt úr keppni á opna enska mótinu í snóker þegar hann mátti játa sig sigraðan gegn Matthew Stevens. 

Stevens sigraði 4:1 og refsaði duglega í hvert skipti sem O’Sullivan varð á í messunni. 

„Lykillinn að því að vinna Ronnie er að setja hann undir pressu. Mannig verður að takast það og hann klikkaði tvisvar undir slíkum kringumstæðum í þetta skiptið,“ sagði Stevens við Eurosport þegar niðurstaðan lá fyrir en hann er kominn áfram í 16-manna úrslit. 

Stevens er í 31. sæti heimslistans en O’Sullivan í 2. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert