Vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit (IA) bar sigur úr býtum í þingkosningum í Grænlandi í gær. Flokkurinn bætti við sig fjórum þingsætum og fékk tólf menn kjörna og um 37,4% atkvæða.
IA er sósíalískur aðskilnaðarflokkur og er lengst til vinstri á grænlenska þinginu. Hann er einnig systurflokkur Vinstri grænna. Þá hefur flokkurinn frá stofnun stefnt að því að Grænland verði sjálfstætt frá Danmörku.
Í samtali við 200 mílur segir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og stofnandi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að flokkurinn hafi í gegnum tíðina verið miklir talsmenn smábátaútgerða. „Þeir fengu mikið fylgi á meðal þeirra sem voru að gera út minni báta svona í dreifðu byggðunum,“ segir Steingrímur.
„Þeir voru með álíka áherslur og við hvað það varðar. Þeir hafa nú kannski ekki fundið upp strandveiðikerfi en alla vega stóðu þeir með smábátaútgerðunum.“
„Ég stofnaði til formlegs samstarfs strax á fyrstu árum Vinstri grænna, og við gerðum með okkur samkomulag flokkanna þriggja; Þjóðveldisfokksins í Færeyjum, Vinstri grænna á Íslandi og IA á Grænlandi. Við héldum lengi vel árlega fundi og sóttum hverjir aðra heim á landsfundi og svona.“
Steingrímur treysti sér ekki til að fullyrða hvort sigur IA gæti leitt til mikilla breytinga á áherslum í sjávarútvegi.
„Ég myndi giska á að þeir vilji fara varlega gagnvart erlendum fjárfestingum í sjávarútvegi. Þeir reyna auðvitað að tryggja að arðurinn komi til Grænlands og IA er örugglega dálítið ákveðið á þeirri línu,“ segir Steingrímur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |