Alexandra lagði upp í öruggum sigri

Alexandra Jóhannsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Alexandra Jóhannsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, heldur áfram að leika vel fyrir Fiorentina í ítölsku A-deildinni. Í dag lagði hún upp eitt mark í þægilegum 4:1-sigri á útivelli gegn Sampdoria.

Alexandra lagði upp fyrsta mark leiksins eftir tæplega hálftíma leik fyrir Miriam Longo.

Longo var svo aftur á ferðinni aðeins þremur mínútum síðar, á 32. mínútu, og staðan 2:0 í leikhléi.

Alexandra var svo tekin af velli í hálfleik.

Í síðari hálfleik minnkaði Sampdoria muninn áður en Longo fullkomnaði  þrennuna. Annahita Zamanian gulltryggði svo sigur Fiorentina með fjórða marki liðsins.

Fiorentina er eftir sigurinn áfram í þriðja sæti deildarinnar, nú með 34 stig, jafnmörg og ríkjandi Ítalíumeistarar Juventus í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert